Innlent

Þrír skólar fyrstu Réttindaskólar UNICEF

Atli Ísleifsson skrifar
Skólastjóri Laugarnesskóla, skólastjóri Laugalækjarskóla, forstöðumaður Kringlumýrar, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og skólastjóri Flataskóla undirrita samkomulagið í gær.
Skólastjóri Laugarnesskóla, skólastjóri Laugalækjarskóla, forstöðumaður Kringlumýrar, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og skólastjóri Flataskóla undirrita samkomulagið í gær. Mynd/UNICEF
Flataskóli, Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli verða fyrstu Réttindaskólar UNICEF hér á landi, en samkomulag þess efnis var undirritað í gær.

Í tilkynningu frá UNICEF segir að Réttindaskólar séu alþjóðlegt vottunarverkefni sem sýnt hafi mikinn árangur alþjóðlega.

„Þátttökuskólarnir leggja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til grundvallar í öllu sínu starfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Með verkefninu er skapaður rammi utan um þau markmið sem koma fram í aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, jafnrétti og lýðræði.

Góð reynsla í þúsundum skóla í öðrum löndum

Réttindaskólar voru upphaflega þróaðir af UNICEF í Bretlandi og kallast þar Rights Respecting SchoolAward. Í Bretlandi eru í dag ríflega 4.000 Réttindaskólar auk þess sem fjöldi slíkra skóla er nú í Kanada, Þýskalandi, Svíþjóð, Danmörku og Slóveníu.

Rannsóknir sem gerðar hafa verið í meira en 1.600 Réttindaskólum hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á skólastarf. Dregið hefur úr einelti og ofbeldi í skólunum, nemendum líður betur og þeir sýna meira umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika, starfsánægja kennara hefur aukist umtalsvert, nemendur taka aukinn þátt í skólastarfinu og þeir hafa meira sjálfstraust,“ segir í tilkynningunni.

Mikið lagt upp úr mannréttindum og lýðræði

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla leggi mikið upp úr mannréttindum og lýðræði.

„Frá því að hún var samþykkt höfum við hjá UNICEF á Íslandi fundið fyrir mikilli eftirspurn frá skólum og frístundamiðstöðvum eftir fræðslu og stuðningi við að uppfylla þessi metnaðarfullu markmið. Við erum því spennt að fara af stað með þetta tilraunaverkefni og stolt af því að fá Réttindaskóla til Íslands. Vonir standa til að geta boðið enn fleiri skólum þátttöku næsta vetur,“ segir Bergsteinn.

Starfsfólk UNICEF á Íslandi mun á skólaárinu vinna náið með Flataskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla og frístundamiðstöðvum þeirra að innleiðingu verkefnisins.

Nánar má fræðast um verkefnið á heimasíðu UNICEF á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×