Bróðir Qandeel Baloch byrlaði foreldrum sínum ólyfjan áður en hann myrti systur sína Birgir Örn Steinarsson skrifar 21. júlí 2016 15:56 Morð Qandeel Baloch hefur hlotið mikla fjölmiðlaathygli enda var hún ein frægasta kona Pakistan. Vísir/AFP
Foreldrar pakistönsku internetstjörnunnar Qandeel Baloch segjast harmi slegnir eftir að yngri sonur þeirra kyrkti dóttur þeirra á föstudaginn síðastliðinn. Waseem Baloch hefur verið handtekinn en hann hefur játað á sig verknaðinn. Faðir hans segist óska þess að hann fái dauðadóm fyrir. Foreldrar Qandeel segja son sinn hafa byrjað sér og dóttur sinni ólyfjan. Þau hafi drukkið mjólk um kvöldið og bæði fallið í fastasvefn. Waseem á að hafa gert það sama við systur sína sem hann kyrkti svo til dauða á meðan hún var án meðvitundar. Hann segist hafa gert þetta til þess að systir hans gæti ekki öskrað á hjálp til foreldra þeirra. Faðir hennar lýsir dóttur sinni sem sínum besta vin og sagðist aldrei hafa skammast sín fyrir hegðun hennar.Mikil reiði á meðal kvenna í PakistanWaseem segist hafa myrt systur sína vegna þess að hún hafi svívirt nafn fjölskyldunnar en slík heiðursmorð eru algeng í Pakistan. Talað er um að um 500 manns séu myrt á ári hverju af fjölskyldumeðlim sem telur viðkomandi hafa svert ættarnafnið. Stærsti hluti þeirra eru konur. Morð Qandeel hefur fengið gífurlega fjölmiðlaathygli í Pakistan og konur um allt land hafa mótmælt hefndarmorðum. Málið gæti orðið til þess að yfirvöld í landinu taki harðar á slíkum málum.Ögraði félagslegum normumBaloch var stjarna í heimalandi sínu og var oft kölluð hin pakistanska Kim Kardashian. Hún starfaði sem fyrirsæta og hafði nýverið reynt fyrir sér á tónlistar- og leiklistarsviðinu. Hún nýtti samfélagsmiðla til þess að koma sjálfri sér á framfæri og ögraði þar með félagslegum normum í Pakistan. Hún birti til dæmis myndir af sér fáklæddri, talað opinskátt um kynferðismál, daðrað við fræga krikkettleikara og ýmislegt annað. Hún talaði líka opinskátt um réttindi kvenna í Pakistan og sagði íbúa landsins þurfa að venjast nýjum tímum. Baloch vissi vel að slíkt er litið hornauga í Pakistan en ögraði engu að síður. Hún hafði nýlega flúið til foreldra sinna eftir að myndband poppstjörnunnar Aryan Khan, sem sýndi hana dansa á ögrandi hátt, var frumsýnd í landinu. Í kjölfarið hafði henni borist morðhótanir og ákvað hún því að flýja til fjölskyldu sinnar í Punjab á meðan öldurnar lægðu.Rétt fyrir morðið hafði BBC fjallað um hana í myndbandi á veg sínum. Það má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Sjá meira