Fjölskyldur árásarmannanna koma af fjöllum Samúel Karl Ólason skrifar 5. júlí 2016 10:23 Hermenn undirbúa líkkistur til flutnings við minningarathöfn í Dhaka. Vísir/EPA „
Við gátum ekki ímyndað okkur þetta. Það voru engar bækur eða nokkuð sem gaf í skyn að hann hallaðist að öfgasamtökum. Við höfðum ekki hugmynd.“Imtiaz Khan Babul, stjórnmálamaður í Bangladess hefur tjáð sig um áfallið að komast að því að sonur sinn var einn árásarmannanna í Dhaka á föstudaginn. Rohan og minnst fjórir aðrir tóku tugi manna í gíslingu á kaffihúsi í borginni og myrtu tuttugu þeirra.Sjá einnig: Árásarmennirnir tilheyrðu vel stæðum fjölskyldum Vitni segja að árásarmennirnir hafi þyrmt lífum múslima en flestir hinna látnu voru ekki frá Bangladess og voru þau myrt með sveðjum. Meðal hinna látnu voru níu frá Ítalíu, sjö frá Japan, einn frá Bandaríkjunum og einn frá Indlandi.Rohan hafði verið týndur um nokkra mánaða skeið áður en hann réðst til atlögu á kaffihúsinu. Babul segir í samtali við AFP fréttaveituna að við leit að syni sínum hafi hann komist að því að fjöldi ungra manna úr efnuðum fjölskyldum væri týndur. Í ljós hefur komið að árásarmennirnir í Dhaka komu úr vel stæðum fjölskyldum. Þeir höfðu stundað nám í dýrum einkaskólum. Fjölskyldur þeirra hafa komið af fjöllum varðandi þátttöku þeirra í starfsemi hryðjuverkasamtaka. Babul telur að þeir komist í tæra við öfga og hryðjuverkasamtök á netinu. Sex menn voru felldir í áhlaupi lögreglu á kaffihúsið og einn handtekinn. Lögreglan hefur nú viðurkennt að einn þeirra sem voru felldir var gísl sem skotinn var fyrir mistök.Hér má sjá viðtal CNN við faðir annars árásarmanns.
Tengdar fréttir ISIS lýsir árásinni í Dhaka á hendur sér Tóku að minnsta kosti tugi manns gíslingu. 1. júlí 2016 23:07 Gíslatökuástand í diplómatahverfi Dhaka Ekki er vitað hve margir eru særðir eða hvort einhver hafi látist. 1. júlí 2016 16:57 Árásarmennirnir tilheyrðu vel stæðum fjölskyldum Fimm menn sem myrtu tuttugu manns á kaffihúsi í Daka í Bangladess falla ekki inn í hið hefðbundna mót öfgamanna. 4. júlí 2016 14:30 Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Sjá meira
ISIS lýsir árásinni í Dhaka á hendur sér Tóku að minnsta kosti tugi manns gíslingu. 1. júlí 2016 23:07
Gíslatökuástand í diplómatahverfi Dhaka Ekki er vitað hve margir eru særðir eða hvort einhver hafi látist. 1. júlí 2016 16:57
Árásarmennirnir tilheyrðu vel stæðum fjölskyldum Fimm menn sem myrtu tuttugu manns á kaffihúsi í Daka í Bangladess falla ekki inn í hið hefðbundna mót öfgamanna. 4. júlí 2016 14:30