Fótbolti

Maradona: Bale er búinn að vera betri en Ronaldo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gareth Bale hefur verið frábær á EM.
Gareth Bale hefur verið frábær á EM. vísir/getty
Besti knattspyrnumaður allra tíma, Argentínumaðurinn Diego Armando Maradona, hefur fylgst vel með EM í Frakklandi.

Hann er spenntur fyrir undanúrslitaleik Wales og Portúgal í kvöld þar sem Real Madrid-stjörnurnar Gareth Bale og Cristiano Ronaldo mætast.

Á meðan Bale hefur skorað þrjú mörk og leikið frábærlega hefur Portúgal ekki enn unnið leik á 90 mínútum.

„Framlag Bale og Ronaldo mun skipta gríðarlega miklu máli í þessum leik,“ segir Maradona.

„Bale er búinn að færa sínu liði meira en Ronaldo hefur fært sínu til þessa.“

Leikur liðanna í undanúrslitum EM er klukkan 19.00 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×