Einar: Eiginlega vonsvikinn að hafa ekki gripið vítið Ingvi Þór Sæmundsson á Ólafsvíkurvelli skrifar 16. maí 2016 22:55 Einar átti frábæran leik í marki Víkings. vísir/anton
Einar Hjörleifsson stóð heldur betur fyrir sínu í marki Víkings Ó. í 3-0 sigrinum á ÍA í 4. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. „Ég er ofboðslega glaður og sáttur með þessi þrjú stig,“ sagði markvörðurinn þrautreyndi eftir leikinn.Sjá einnig: 39 ára gamall sjóari og markvörður Ólsara stal senunni í kvöld | Myndband Með sigrinum skutust Víkingar á topp Pepsi-deildarinnar og þar finnst þeim gott að vera segir Einar. „Er ekki best að vera á toppnum? Þetta er fín tilfinning og við njótum augnabliksins og reynum að halda þessu gangandi,“ sagði Einar sem varði vítaspyrnu frá Garðari Gunnlaugssyni í seinni hálfleik. En giskaði hann á rétt horn eða las hann Garðar? „Veistu, ég veit það ekki. Stundum fær maður bara einhverja tilfinningu. Ég fór bara þarna, ég veit ekkert hvort ég las hann en ég varði vítið,“ sagði Einar sem varði einnig frákastið frá Garðari. „Það var meira að segja betra ef eitthvað var. Ég var eiginlega vonsvikinn að hafa ekki gripið vítið því það var svo laust,“ sagði markvörðurinn sem er þekktur vítabani. Margir vildu meina að boltinn hafa verið inni þegar Einar varði frá Garðari í fyrri hálfleik. Hann er ekki sammála því. „Mitt kalda og heiðarlega mat er að hann var aldrei farinn inn. Ég segi það og stend við það,“ sagði Einar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Fleiri fréttir Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Sjá meira