Stoppa þrælahald fótboltamanna í Rúmeníu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2016 10:00 Myndin tengist fréttinni ekki. Ovidiu Hoban og Florin Andone fagna marki með rúmenska landsliðinu. Vísir/Getty
Barátta hundruða leikmanna í Rúmeníu er loksins að bera árangur og þeir sjá nú leið út úr slæmri stöðu hjá sínum félögum. Um þrjú hundruð leikmenn hjá fjórtán gjaldþrota félögum í Rúmeníu eiga nú loksins möguleika á því að losna undan samningum sínum vegna vangoldinna launa. Hingað til hafa þessir leikmenn verið flokkaðir sem eignir félaganna sem þýðir að þeir hafa verið fastir þegar félögin voru tekin til gjaldþrotaskipta. Leikmannasamtökin í Rúmeníu, Afan, hafa barist gegn þessu þrælahaldi og það hefur borið þann árangur að lögunum í kringum greiðsluþrot hefur nú verð breytt. Margar sorgarsögur eru í kringum þetta "þrælahald" fótboltamanna í Rúmeníu enda hefur leikmönnum gengið afar illa að innheimta launin sem þeir eiga inni. BBC segir frá málinu og ræðir við breska knattspyrnumanninn Rhema Obed sem lenti í því að fá ekki laun sín greidd þegar hann lék með Rapid Búkarest tímabilið 2013-14. Rapid skuldar honum ennþá 40 þúsund pund í laun fyrir þá sjö mánuði sem hann var hjá félaginu sem gera rúmar sjö milljónir íslenskra króna. „Þegar ég var nýkominn til félagsins þá fóru liðsfélagar mínir í verkfall og hótuðu því að spila ekki fyrr en þeir fengu launin sín. Fyrstu þrjá mánuðina þá beið ég það að borga leiguna, notaði það sem ég átti inn á banka og það sem kærastan fékk í laun. Þannig lifði ég," sagði Rhema Obed við BBC. „Ég þurfti líka að hringja heim sem var vandræðalegt fyrir fótboltamann. Þetta var bara staðan og ég fékk að borða hjá mömmum eins liðsfélaga míns," sagði Rhema Obed sem var þá 22 ára gamall. Hann fór með málið til FIFA sem úrskurðaði honum í hag í október 2014. Rhema Obed hefur enn ekki fengið peninginn frá Rapid Búkarest og FIFA er farið að hóta félaginu refsiaðgerðum bæti menn þar á bæ ekki úr því. „Leikmenn urðu bara að þrælum þarna. Þetta er aðeins öðruvísi fyrir útlendinga en fyrir heimamenn þá er þetta vara nútíma þrælahald," sagði Rhema Obed.
Fótbolti Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Sjá meira