Enski boltinn

Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Paul Gascoigne er einn besti leikmaður sögunnar á Englandi en utan vallar hefur leikur hans verið verri.
Paul Gascoigne er einn besti leikmaður sögunnar á Englandi en utan vallar hefur leikur hans verið verri.

Paul Gascoigne, einn þekktasti knattspyrnumaður Englands fyrr og síðar, hefur rifjað upp erfiða tíma úr lífi sínu og meðal annars sagt frá því að hann hafi einu sinni sleppt því að sofa í sex vikur.

Gascoigne ræddi þetta í ítarlegu viðtali við Andrew Gold í hlaðvarpinu Heretics. Hlaðvarpið var tekið upp fyrir um mánuði síðan. Þar fer hann yfir ýmis erfið tímabil í lífi sínu og lýsir meðal annars því hvernig langvarandi svefnleysi hafði gríðarleg áhrif á hann.

Hann segist að lokum hafa orðið geðrofssjúkur eftir að hafa verið án svefns svo lengi. Í þættinum segir hann einnig frá ýmsum undarlegum upplifunum sem hann varð fyrir á þessu tímabili, meðal annars því að sjá og heyra hluti sem voru ekki raunverulegir.

Áföll í æsku

Viðtalið snýst þó ekki eingöngu um svefnleysið. Gascoigne ræðir þar opinskátt um áföll úr æsku, baráttu sína við áfengisvandamál og geðrænan vanda auk þess sem hann rifjar upp ýmis eftirminnileg augnablik úr ferlinum.

Gascoigne, sem varð heimsfrægur fyrir frammistöðu sína með enska landsliðinu og félögum á borð við Newcastle United, Tottenham og Lazio, hefur um árabil verið opinskár um erfiðleikana sem fylgdu lífi hans utan knattspyrnuvallarins.

Viðtalið hefur vakið mikla athygli og gefur nokkuð óvenjulega innsýn í líf leikmannsins sem eitt sinn var meðal skærustu stjarna heims.

Hér má sjá brot úr þættinum þar sem Gazza ræðir þennan sex vikna kafla í sínu lífi.

Hér að neðan má sjá hlaðvarpið í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×