Íslenski boltinn

Guðjón Pétur: Tel mig hafa leiðrétt skoðun Arnars

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Þetta er kannski eðlilegt miðað við árið í fyrra en við hljótum að stefna aðeins hærra,“ segir Guðjón Pétur Lýðsson í viðtali við Vísi um spá Íþróttadeildar 365 sem spáir Valsmönnum fimmta sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Valur hefur endað í fimmta sæti undanfarin þrjú ár en liðið vaknaði af smá blundi síðasta sumar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar og varð bikarmeistari.

„Við erum með lið sem á að geta strítt þessum bestu liðum og ég tel okkur hafa burði til þess. Maður veit aldrei hvað gerist,“ segir Guðjón Pétur, en þýðir það titilbarátta?

„Ég held að það sé ekkert launungarmál að Valur stefnir að því að verða Íslandsmeistari, hvort sem það er núna eða á næsta ári. Það er allavega krafan að Valur sé í toppbaráttu.“

Geðveikt að vera í Val

Guðjón Pétur er kominn til Vals í annað sinn en þegar hann samdi við félagið í vetur sagði hann í viðtali að nú langaði hann að „gera hlutina almennilega.“

„Ég fór á sínum tíma ekkert á bestu nótum. Á þeim tíma var samt uppgangur hjá Val og spennandi tímar en svo koma erfiðir tímar fjárhagslega á öllum félögum en nú er kominn tími á að gera þetta almennilega og ráðast almennilega á titla og skemmtilegheit,“ segir hann, en Guðjón nýtur þess að vera á Hlíðarenda.

„Það er geðveikt að vera í Val. Það er ára yfir Val. Það er fullt af mönnum í kringum félagið sem hafa náð miklum árangri - alvöru karakterar,“ segir hann.

„Allt í kringum þig er verið að minna þig á að þú ert í Val. Það eru bikarar og stanslaust verið að minna þig á alla titla. Maður á að krefjast þess af sjálfum sér að vera í svona félagis og reyna að koma með þessa tíma aftur.“

Er heitur í skapinu

Guðjón Pétur Lýðsson var ekki í myndinni hjá Arnari Grétarssyni í byrjun móts hjá Breiðabliki í fyrrasumar en vegna meiðsla þurfti hann að byrja mótið og stóð sig frábærlega. Guðjón var á endanum ein helsta ástæða þess að Breiðablik hafnaði í öðru sæti.

„Ég er ekki í því að gefast upp. Mótlæti er það sem gerir þig betri og byggir þig upp. Það getur hver sem er haft trú eða ekki á þér en þú þarft sjálfur að hafa trú á þér og ég hef trú á mér. Ég veit að ef ég spila þá skila ég góðu verki. Svo er það bara undir þjálfaranum komið hvort hann noti mig eða ekki,“ segir Guðjón Pétur.

„Það er ekki gaman þegar þjálfarinn notar mann ekki. Ég þoli ekki að spila ekki og er frekar heitur í skapinu. En ég tala bara á vellinum og hef ekkert annað að segja,“ segir hann, en hvernig var samband þeirra þegar þetta var í gangi?

„Það var mjög gott. Ég virði Arnar gífurlega og hann hefur margt fram að færa sem þjálfari. Vinnusiðferði hans er til fyrirmyndar og á flestan hátt mjög fær þjálfari. Þetta var hans skoðun og ég held að ég hafi leiðrétt hana.“

Hann viðurkennir að þetta varð samt til þess að hann yfirgaf Kópavoginn. „Það var eiginlega eina ástæðan. Ég var ósáttur með að mér fannst ég ekki njóta trausts þjálfarans en ég tel mig hafa það núna og það er mjög spennandi,“ segir Guðjón Pétur Lýðsson.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Viðtal: Tómas Þór Þórðarson

Upptaka og eftirvinnsla: Guðni Ingi Johnsen, Garðar Örn Arnarson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×