Enski boltinn

Demichelis kærður vegna veðmála

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Demichelis í leiknum gegn Man. Utd á dögunum.
Demichelis í leiknum gegn Man. Utd á dögunum. vísir/getty
Enska knattspyrnusambandið hefur kært varnarmann Man. City, Martin Demichelis, vegna meintra veðmála.

Þessi 35 ára argentínski varnarmaður er sakaður um tólf brot er tengjast veðmálum. Þau eiga öll að hafa átt sér stað frá 22. janúar á þessu ári til 28. janúar.

Varnarmaðurinn þarf að svara þessum ásökunum eigi síðar en þann 5. apríl næstkomandi.

Demichelis er búinn að spila átján leiki fyrir Man. City á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×