Bíó og sjónvarp

Að vinna Edduna var hálf óraunverulegt

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Birna Rún leikkona hlaut Edduverðlaun sem leikkona ársins í aukahlutverki.
Birna Rún leikkona hlaut Edduverðlaun sem leikkona ársins í aukahlutverki.
„Þetta kom mér alveg rosalega á óvart, ég bjóst engan veginn við þessu. Í fyrsta lagi fannst mér bara frábært að vera tilnefnd í hópi þessara flottu leikkvenna, og svo að vinna þetta var hálf óraunverulegt. Ég er ótrúlega þakklát fyrir hvað margir kunnu að meta vinnuna sem ég lagði í hlutverkið,“ segir Birna Rún Eiríksdóttir leikkona, sem hlaut á sunnudaginn Edduna fyrir leik sinn í aukahlutverki í sjónvarpsþáttaröðinni Rétti 3, sem sýnd var á Stöð 2 fyrr í vetur.

Birna Rún, sem ennþá nemur við Listaháskóla Íslands, fór með hlutverk Hönnu, 17 ára stelpu sem átti ansi erfiða æsku, byrjar að drekka þrettán ára og lendir í slæmum félagsskap og neyslu. Hlutverkið þótti afar krefjandi og þótti Birna skara fram úr fyrir túlkun sína á hlutverkinu.

„Ég fór í þetta með hjartanu alla leið. Mér fannst ekkert smá gaman að fá að takast á við þetta hlutverk. Þessi raunveruleiki, að íslenskar stelpur séu seldar fyrir dóp, er til staðar í okkar samfélagi og það er misjafnt hvort fólk vill horfast í augu við það eða ekki. Það er lítið af úrræðum fyrir unglinga í neyslu svo þetta er brýnt málefni,“ segir hin unga leikkona Birna Rún um persónuna sem hún lék í þriðju þáttaröð af Rétti.

Leikkona ársins í aðalhlutverki var Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, einnig fyrir hlutverk sitt í Rétti. Leikarar ársins í aðal- og aukahlutverki voru valdir þeir Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hrútar. Sjónvarpsþáttaröðin Ófærð var valin leikið sjónvarpsefni ársins og titilinn sjónvarpsmaður ársins hlaut Helgi Seljan. Stuttmyndin Regnbogapartý og heimildarmyndin Hvað er svona merkilegt við það? unnu Edduna hvor í sínum flokki. Ragna Fossberg förðunarmeistari hlaut Heiðursverðlaun Eddunnar 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×