Sænski læknirinn dæmdur í tíu ára fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 23. febrúar 2016 10:23 Byrgið á Skáni. Í fórum mannsins fundust einnig dýrar andlitsgrímur. Mynd/Sænska lögreglan
Dómstóll í Stokkhólmi dæmdi í dagMartin Trenneborg, 38 ára lækni, í tíu ára fangelsi fyrir að hafa haldið ungri konu fanginni í hljóðeinangruðu byrgi á Skáni. Læknirinn viðurkenndi að hafa svipt konuna frelsi, en neitaði ákæruliðum sem sneru að nauðgun. Trenneborg hóf smíði byrgisins á bæ sínum rétt fyrir utan Kristianstad fyrir um sex árum síðan. Byrgið var hljóðeinangrað, steypt og með stálhurð og var innan í húsi úr timbri sem að utan leit út fyrir að vera geymsluskúr. Rýmið var 60 fermetrar og þar hélt hann konunni, sem einnig var frá Stokkhólmi, fanginni í fimm daga. Í ákæru kemur fram að hann hafi eitrað fyrir henni og misnotað.Í frétt DN er haft eftir saksóknaranum Peter Claeson að læknirinn hafi haft í hyggju að halda fjölda fólks föngnum í byrginu. Læknirinn þjáist ekki af geðsjúkdómi, en réttarsálfræðingar segja hann hafa þjáðst af geðtruflunum þegar hann framdi brotin. Mari Schaub, verjandi læknisins, segir skjólstæðing sinn hafa haft í hyggju að finna lífsförunaut. Trenneborg og konan hittust fyrst á stefnumóti þann 10. september síðastliðinn. Þar á hann að hafa talað á ensku allan tímann og sagst vera Bandaríkjamaður sem starfaði innan fjármálageirans. Tveimur dögum síðar hittust þau á ný þar sem hann eitraði fyrir henni með jarðarberjum sem höfðu verið eitruð með svefnlyfi. „Þegar ég vaknaði var ég með eina eða tvær sprautunálar í handleggjunum sem ég tók úr mér. Hann sat á stólnum við hliðina á mér þegar ég vaknaði. [...] Hann sagði hurðina vera þeirrar tegundar sem væri í bankahvelfingum og að ómögulegt væri að komast þaðan. Nú talaði hann ensku,“ sagði konan í yfirheyrslum þar sem hún sagðist hafa ímyndað sér að þetta hafi einungis verið óraunveruleg martröð. Byrgið var falið inni í þessum skúr.Mynd/Sænska lögreglanLæknirinn á að hafa tekið fjölda blóðsýna úr líkama hennar og sendi til rannsóknar þar sem hann sagði þau vera úr óþekktri flóttakonu sem væri án kennitölu. Konan segist hafa greint frá því að læknirinn hafi hótað henni að festa með keðjum og gefa henni einungis hrökkbrauð, færi hún ekki að fyrirmælum hans. Eftir að hafa haldið konunni fanginni í fimm daga sneru þau aftur til Stokkhólms til að sækja einhverjar eigur hennar. Þegar maðurinn sá að fjölskylda konunnar hafði skilið miða eftir í íbúð hennar þess efnis að það hafi verið lýst eftir henni skipaði læknirinn konunni að fara með honum á lögreglustöð til að segja að hún hafi sjálfviljug farið með honum. Starfsmaður á lögreglustöðinni tók hins vegar eftir að ekki var allt með felldu og fór með konuna afsíðis þar sem hún greindi frá hvað hafi gerst síðustu vikuna. „Tárin runnu og hún sagði að maðurinn, sem var með henni í móttökunni, hafði rænt henni og að hann væri með byssu, “ sagði starfsmaðurinn. Vopn læknisins reyndist kolsýrubyssa sem skýtur litlum plastkúlum. Við leit lögreglu hjá manninum fundust einnig hjólastóll og dýrar grímur sem hann hugðist nota ef hann þyrfti að fara í felur. Saksóknari hefur farið fram á sextán ára dóm yfir manninum.Dr Martin Trenneborg's victim on how he raped her and kept her in a secret… https://t.co/EUnN26avyK #InfoNdoroTweet pic.twitter.com/C27eqnRJbq— Tommy Sanjaya (@bungtomsss) January 21, 2016
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Sjá meira