Aron í bandaríska hópnum sem á að verja Gullbikarinn T'omas Þór Þórðarson skrifar 23. júní 2015 19:49 Aron Jóhannsson hefur fengið traustið hjá Klinsmann undanfarið. vísir/getty
Aron Jóhannsson, Íslendingurinn í bandaríska landsliðinu í fótbolta, er í 23 manna hópnum sem Jürgen Klinsmann valdi fyrir Gullbikarinn þar sem liðin frá Norður- og Mið-Ameríku berjast. Keppnin fer að þessu sinni fram í Bandaríkjunum og Kanada og stendur frá 7.-26. júlí. Aron hefur byrjað undanfarna leiki hjá bandaríska liðinu í fjarveru Jozy Altidore og Clint Dempsey, stórstjarna bandaríska liðsins, en þeir eru báðir í hópnum að þessu sinni. Aron er þó eini framherjinn sem heldur sæti sínu af þeim sem Klinsmann hefur verið að prófa undanfarna mánuði. Annars treystir Þjóðverjinn á reynsluboltanna Altidore, Dempsey og Chris Wondolowski. Þeir voru allir með Aroni á HM síðasta sumar. Bandaríska liðið spilar síðasta æfingaleikinn fyrir Gullbikarinn 3. júlí gegn Gvatemala, en fyrsti leikur Bandaríkjanna í keppninni verður gegn Hondúras 7. júlí. Bandaríkin eru í riðli með Panama, Haítí og Hondúras, en bandaríska liðið vann mótið þegar það var síðast haldið fyrir tveimur árum. Þar sem það vann síðasta mót er liðið að minnsta kosti búið að tryggja sér umspilsleiki gegn meisturunum í ár um sæti í Álfukeppninni í Rússlandi árið 2017. Sigurvegarinn 2013 mætir nefnilega sigurvegaranum 2015 í þeim leikjum, en vinni Bandaríkin aftur fara þau sjálfkrafa í Álfukeppnina.
Fótbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Sjá meira