Kristján Flóki: Kominn tími á að FH vinni tvennuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. mars 2015 18:17 Kristján Flóki í leik með FH gegn Ólsurum. vísir/fótbolti.net „
Það er frábært að vera kominn heim aftur og ennþá betra að vera kominn heim í uppeldisfélagið,” segir knattspyrnumaðurinn Kristján Flóki Finnbogason í viðtali á heimasíðu FH. Félagaskipti Kristjáns Flóka frá FCK í Danmörku voru í meira lagi skrautleg því 17. mars tilkynnti Breiðablik að það hefði náð samningum við leikmanninn. Honum snerist síðar hugur og greindi Vísir frá því að Kristján Flóki hefði aldrei skrifað undir samning við Breiðablik. Kristján Flóki gerði á endanum þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt en þessi tvítugi framherji bað Blika svo afsökunar á öllu í yfirlýsingu frá öllum aðilum. „Það sem heillaði mig mest er að þetta er auðvitað uppeldisklúbburinn. Liðið stefnir alltaf á það að vinna allt það sem í boði er og fara eins langt og hægt er í Evrópukeppni. Hérna í Kaplakrika eru kunnulegar aðstæður fyrir mig, en þessi aðstæða og þjálfun er sú besta að mínu mati,“ segir Kristján Flóki. FH-ingar hafa ekki unnið deild eða bikar undanfarin tvö ár og ætla sér stóra hluti í ár enda orðnir atvinnumannafélag eins og formaður knattspyrnudeildar FH sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 á laugardaginn. „Mér finnst kominn tími til þess að FH vinni tvennuna og ætla ég að gera allt sem í valdi mínu stendur til að hjálpa til við það, en ég mun aldrei gleyma því 2004 þegar við unnum fyrsta titilinn. Velgengnin hefur verið mikil síðan og við ætlum að halda henni gangandi áfram,” segir Kristján Flóki Finnbogason.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Handbolti Fleiri fréttir „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Sjá meira