Kristján Flóki búinn að skrifa undir þriggja ára samning við FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. mars 2015 17:45 Kristján Flóki Finnbogason klæðist aftur búningi FH þegar hann kemur heim frá Rúmeníu. mynd/fótbolti.net
Kristján Flóki Finnbogason, framherji U19 ára landsliðs Íslands, er genginn í raðir uppeldisfélags síns FH frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Kristján Flóki er staddur í Rúmeníu með unglingalandsliðinu en foreldrar hans skrifuðu undir þriggja ára samning við FH í hans umboði í Kaplakrika í dag. Þetta hefur Vísir fengið staðfest. Mál Kristjáns Flóka hefur verið hið undarlegasta, en Breiðablik gaf út yfirlýsingu 17. mars um að það væri búið að ganga frá þriggja ára samningi við leikmanninn. Eins og kom fram á Vísi í dag var það ekki rétt. Samkvæmt heimildum Vísis var Kristján Flóki aldrei búinn að skrifa undir samning við Breiðablik. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, vildi lítið láta hafa eftir sér um málið í samtali við Vísi í dag og vísaði í yfirlýsingu félagsins. Þessum dansi er nú lokið og er Kristján Flóki kominn aftur heim í Kaplakrika. Hann kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni með FH; einum árið 2012 og öðrum 2013, áður en hann gekk í raðir FC Kaupmannahafnar. Þetta er ákveðið áfall fyrir Breiðablik sem er nú í smá framherjakrísu. Félagið lét Elvar Pál Sigurðsson fara til Leiknis á dögunum og þá yfirgaf Árni Vilhjálmsson auðvitað Blika í vetur og hélt í atvinnumennsku. Elfar Árni Aðalsteinsson hélt svo norður og samdi við KA. Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, er þó enn með Ellert Hreinsson og tvítuga Bosníumanninn Ismar Tandir til að stilla upp í framlínuna.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira