Fagnaðarlátunum ætlaði seint að linna að loknum flutningi Víkings Heiðars. Fór svo að hann spilaði aukalag, Samtal fuglanna eftir Jean Philippe Rameau Le rappel , fyrir gesti sem fögnuðu vel að því loknu.
Um föstudagstónleika hljómsveitarinnar var að ræða og aðalhljómsveitastjórinn Rafael Payare hélt á sprotanum. Tónleikarnir voru í beinni útsendingu í útvarpi og vef BBC.
Auk píanókonsertsins var Sinfónía númer níu eftir Shostakovich á dagskrá ásamt verkum eftir Schnittke og Smetana. Flutningur Víkings Heiðars hefst eftir rúma ellefu og hálfa mínútu í spilaranum á vefsíðu BBC. Smellið hér.
Að neðan má sjá þegar Víkingur Heiðar flutti Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu árið 2011. Víkingur sagði að lagið væri eins konar blessun fyrir tónlistarhúsið.