Draumaleikir Guðbjargar líklega úr sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2015 08:30 Guðbjörg Gunnarsdóttir. Vísir/Getty
Meiðsli Guðbjargar Gunnarsdóttur í landsleiknum á móti Slóveníu ætla að verða henni dýrkeypt og draumaendir hennar á tímabilinu er mögulega að breytast í martröð. Guðbjörg fékk slæmt högg á rifbeinin í sigurleik íslenska landsliðsins út í Slóveníu og þurfti að yfirgefa völlinn. Guðbjörg og félagar í Lilleström eru þegar búnar að tryggja sér norska meistaratitilinn og því skiptir ekki miklu þótt að hún missi af síðustu tveimur deildarleikjum liðsins. Það eru hinsvegar þrír aðrir stórleikir sem Guðbjörg var búin að horfa til og tveir af þeim eru nú í mikilli hættu. „Þetta er alveg glatað. Rifbeinið er að öllum líkindum brákað," sagði Guðbjörg í samtali við Sindra Sverrisson á Morgunblaðinu. Það kom ekkert brot í ljós í myndatöku á sjúkrahúsi út í Slóveníu. Hún hefur aftur á móti ekkert getað æft síðan að hún kom heim þar sem sjúkraþjálfarar Lilleström-liðsins segja rifbeinið vera brákað. Lilleström spilar við Frankfurt 11. og 18. nóvember í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en bikarúrslitaleikurinn við Avaldsnes er síðan 21. nóvember. „Það þarf allt að ganga upp til að ég nái leikjunum í Meistaradeildinni," sagði Guðbjörg sem var búinn að horfa til leikjanna á móti Evrópumeisturum Frankfurt. "Fyrir mig sem markmann eru þetta algjörir draumaleikir, að mæta besta liði Evrópu. Ég held ennþá í vonina," sagði Guðbjörg í fyrrnefndu viðtali. Besta ráðið sem sjúkraþjálfarar Lilleström hafa gefið henni er að hvíla sem mest og þá grói þetta hraðar. Guðbjörg er ekki eini íslenski leikmaðurinn sem er í kapphlaupi við tímann upp á að ná bikarúrslitaleiknum því Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Avaldsnes, fór snemma af velli á móti Slóveníu eftir að hnémeiðsli tóku sig upp. Hólmfríður og Guðbjörg fá vonandi tækifæri til að mætast í bikarúrslitaleiknum.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira