Bíó og sjónvarp

Steve Jobs óvæntasti skellur ársins

Birgir Olgeirsson skrifar
Michael Stuhlbarg, Michael Fassbender og Kate Winslet í hlutverkum sínum í nýju Steve Jobs-myndinni.
Michael Stuhlbarg, Michael Fassbender og Kate Winslet í hlutverkum sínum í nýju Steve Jobs-myndinni. Vísir/IMDb
Kvikmyndin Steve Jobs, sem fjallar um ævi stofnanda Apple, er einn óvæntasti skellur ársins. Myndin skartar Michael Fassbender í hlutverki Jobs og er byggð á handriti Óskarsverðlaunahafans AaronSorkin. Hún þénaði aðeins 7,2 milljónir dollara, tæpan milljarð íslenskra króna,  í miðasölu kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum um liðna helgi sem var undir væntingum framleiðenda myndarinnar sem er sögð hafa kostað 30 milljónir dollara í framleiðslu.

Margir töldu að þessi mynd ætti eftir að ganga vel í kvikmyndahúsum. Leikstjórinn er Óskarsverðlaunahafinn Danny Boyle og er talin líkleg að fá nokkrar Óskarsverðlaunatilnefningar. Hún er metin 85 prósent fersk á vefnum Rotten Tomatoes.

Myndin náði rétt svo að skáka aðsóknartölum myndarinnar Jobs sem kom út árið 2013 en hún var einnig byggð á ævi Steve Jobs og skartaði AshtonKutcher í aðalhlutverki. Sú mynd þénaði 6,7 milljónir dollara á opnunarhelgi sinni.

En þessi mynd var ekki sú eina sem hlaut dræma aðsókn vestanhafs um helgina. JemandtheHolograms þénaði tæpa milljón dollara í miðasölu kvikmyndahúsa og var verr tekið heldur en ævintýramyndinni Pan sem er talin meðal mestu vonbrigða ársins.

Þá var einnig dræm aðsókn að nýjustu mynd BillMurray, RocktheKasbah, sem þénaði aðeins 1,5 milljónir dollara.

Þessar tölur gera það að verkum að opnunarhelgi nýjustu kvikmyndar Vin Diesel, The Last WitchHunter, sem Ólafur Darri Ólafsson leikur í, lítur ekki eins illa út þó að myndin hafi aðeins þénað 10,8 milljónir dollara en hún er sögð hafa kostað rúmlega 75 milljónir dollara í framleiðslu.

TheMartian, með Matt Damon, átti þó enn eina góða helgina. Myndin tók inn 16 milljónir dollara í miðasölu en hún hefur verið í sýningu í fjórar vikur og þénað í heildina 166 milljónir dollara vestanhafs.  Í öðru sæti á aðsóknarlistanum er myndin Goosebumps sem þénaði 15,5 milljónir dollara.

Fjölmiðlar vestanhafs hafa reynt að finna útskýringar á því hvers vegna svona mörgum nýjum myndum gekk illa á opnunahelginni.

Þótt tæpir að tæpir tveir mánuðir séu í frumsýningu sjöundu Star Wars-myndarinnar, TheForceAwakens, þá hefur gripið um sig afar öflugt Star Wars-æði um allan heim og hefur myndin þegar slegið öll met í forsölu. Er því haldið fram að þetta æði geri það að verkum að kvikmyndaáhugamenn hafi hreinlega ekki áhuga á öðru en sjá þessa nýjustu Stjörnustríðsmynd og aðrar myndir líði fyrir það.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×