Bíó og sjónvarp

Enginn Logi á veggspjaldi Star Wars

Samúel Karl Ólason skrifar
Veggspjald nýju myndarinnar.
Veggspjald nýju myndarinnar. Vísir/Lucasfilm
Framleiðendur nýju myndannar úr Star Wars heiminum, The Force Awakens, birtu veggspjald myndarinnar Force Awakens í gær og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla athygli. Nokkur atriði á myndinni, eins og eitthvað sem lítur út fyrir að vera nýtt Helstirni, hafa valdið miklu fjaðrafoki.

Það sem hefur þó valdið mestu fjaðrafoki, er ekki eitthvað nýtt sem er á myndinni, heldur eitthvað gamalt, sem er ekki á myndinni. Logi Geimgengill.

Það liggur fyrir að Mark Hamill lék í myndinni sem gerist um 30 árum eftir að Return of the Jedi. Margir telja að hann hafi verið í felum síðan og muni snúa aftur til að þjálfa nýja kynslóð Jedi riddara.

Önnur kenning, sem þykir nú frekar ólíkleg, er að Logi sé í raun á veggspjaldinu. Þar sé hann með grímu og haldi á rauðu geislasverði og sé í raun Kylo Ren. Disney hefur þó áður gefið út að leikarinn Adam Driver muni leika Kylo og því þykir þessi kenning hæpin.

Í kvöld verður svo ný stikla úr myndinni birt. Stiklan verður fyrst birt í auglýsingahléi á ESPN í kvöld, en skömmu eftir það verður henni dreift á samfélagsmiðlum.

Þessi bútur úr stiklunni var birtur í gær, en kynningarstarfið fyrir myndina The Force Awakens virðist vera komið í fimmta gír.

Grab your friends: the Resistance gathers tomorrow. Watch ESPN's Monday Night Football for a new look at Star Wars: The Force Awakens. #TheForceAwakens

Posted by Star Wars on Sunday, October 18, 2015
Í gær var svo birt veggspjald myndarinnar, sem margir telja að byggi á veggspjöldum gömlu myndanna. Á veggspjaldinu má sjá gamlar hetjur sem og nýjar. Hér að neðan má sjá Facebook færslu Star Wars.

Forsala miða á myndina í Bretlandi hófst í dag, tveimur mánuðum áður en myndin byrjar í sýningum. Heimasíður þar sem hægt er að kaupa miða fóru þó á hliðina mjög fljótt eftir að salan hófst.

The dark side and the light together on the new official poster. Tune in to ESPN's Monday Night Football tomorrow for an exclusive new look at STAR WARS: THE FORCE AWAKENS. #TheForceAwakens

Posted by Star Wars on Sunday, October 18, 2015

Tengdar fréttir

Stjörnusprengja á Íslandi

Justin Bieber og Mads Mikkelsen eiga það sameiginlegt að vera báðir staddir hér á landi og því nýjustu Íslandsvinirnir í sístækkandi safni. Koma poppprinsins hefur vakið mikla athygli, umtalsvert meiri en koma þess danska.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×