Innlent

Ísland og Bandaríkin eiga ekki í viðræðum um varanlega staðsetningu liðsafla

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Robert Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Robert Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Mynd/Utanríkisráðuneytið
„Íslensk stjórnvöld hafa ekki haft frumkvæði að því að ræða varanlega staðsetningu bandarísks liðsafla á Íslandi og viðræður þess efnis eiga sér ekki stað á milli ríkjanna.“ Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um viðræður Roberts Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra sem Björn Bjarnason fjallaði um í vikunni.

„Í tilkynningu um fund þeirra segir utanríkisráðuneytið að ráðherrarnir hafi rætt  „tvíhliða öryggis- og varnarmálasamstarf Íslands og Bandaríkjanna sem gagnkvæmur áhugi er á að efla frekar“,“ segir Björn á síðunni Varðberg.

Ráðherra ekki haft frumkvæði að umræðum um aukningu liðsafla

„Íslensk stjórnvöld hafa í samskiptum við Bandaríkin lagt áherslu á að bandaríski flugherinn haldi áfram árlegri þátttöku í loftrýmisgæslu á Íslandi og komi hingað til æfinga sem boðað er til, meðal annars á vegum Atlantshafsbandalagsins.

Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að bandarísk hermálayfirvöld leggi eigið mat á lágmarksþörf varnarmannvirkja- og búnaðar á Íslandi til að geta framfylgt skuldbindingum Bandaríkjanna sem felast í varnaráætlun Íslands og öðrum varnaráætlunum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Slíkt mat er ein af forsendum þess að íslensk stjórnvöld geti viðhaldið varnarviðbúnaði sem mætir þörfum Íslands hverju sinni og þar sem jafnframt er tekið tillit til rekstrarhagkvæmni,“ segir Urður.

Roberts Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti landið í vikunni og fundaði með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra á þriðjudag.

„Á umræddum fundi með varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna í vikunni lagði utanríkisráðherra áherslu á að viðeigandi varnarviðbúnaður sé til staðar á Íslandi og að íslensk stjórnvöld hafi sinnt mikilvægi varnarhlutverki frá brottför varnarliðsins. Hins vegar hefur komið fram í samtölum við Bandaríkjamenn það sjónarmið að í ljósi breytts öryggisumhverfis gæti verið ástæða fyrir bandarísk stjórnvöld að auka viðveru bandarísks liðsafla á Íslandi. Ráðherra hefur ekki sjálfur haft frumkvæði að því að reifa slík atriði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×