Íslenski boltinn

Pedersen með tvö mörk og stoðsendingu gegn Fylki | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valsmenn unnu sinn fyrsta deildarsigur síðan 20. júlí þegar Fylkismenn komu í heimsókn á Laugardalsvöllinn í gær.

Patrick Pedersen lék á alls oddi og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-2 sigri Vals sem er í 4. sæti Pepsi-deildarinnar.

Pedersen kom Val yfir með marki beint úr aukaspyrnu á 8. mínútu og á þeirri 37. kom hann heimamönnum í 2-0 þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Daninn er nú kominn með 10 mörk í deildinni, einu meira en Blikinn Jonathan Glenn.

Kristinn Ingi Halldórsson kom Valsmönnum þremur mörkum yfir á 53. mínútu en tveimur mínútum síðar minnkaði miðvörðurinn Ásgeir Eyþórsson muninn fyrir Fylki.

Einar Karl Ingvarsson kom Val svo í 4-1 með glæsilegu marki á 65. mínútu en 12 mínútum síðar skoraði Ásgeir sitt annað mark og niðurstaðan 4-2 sigur Vals.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×