Íslenski boltinn

Atli Viðar og Lennon afgreiddu Keflavík | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
FH vann Keflavík, 2-0, í Pepsi-deild karla í fótbolta í gærkvöldi og er með fullt hús eftir tvær umferðir.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom markavélin Atli Viðar Björnsson inn á fyrir FH og kom heimamönnum yfir á 69. mínútu.

Skoski framherjinn Steven Lennon bætti svo um betur og tvöfaldaði forskot FH á 82. mínútu leiksins.

Hér að ofan má sjá bæði mörkin í leiknum.

Keflvíkingar spiluðu manni færri síðustu fimm mínútur leiksins eftir að Kiko Insa, spænskur miðvörður liðsins, fékk rautt spjald fyrir ruddalega tæklingu.

Farið verður yfir rauða spjaldið og allt annað sem gerðist í annarri umferðinni í Pepsi-mörkunum sem eru á dagskrá Stöð 2 Sport í kvöld klukkan 22.00.

Leikur Leiknis og ÍA er í beinni útsendingu klukkan 19.15.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×