Auðvelt hjá Blikum gegn FH | Jeppe sá um Keflavík Anton Ingi Leifsson skrifar 28. mars 2015 14:09 Jeppinn skoraði tvö gegn Keflavík. vísir/valli
Breiðablik og Stjarnan unnu leiki sína í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu. Breiðablik lagði Ísladsmeistaraefnin í FH af velli 3-0 og Stjarnan skoraði tvö mörk gegn engu hjá Keflavík. Davíð Kristján Ólafsson kom Breiðablik yfir eftir smekklegan undirbúning frá Guðjóni Pétri Lýðssyni. Pétur Viðarsson, miðvörður FH, gerði svo sig sekan um klaufaleg mistök, Ellert Hreinsson stal af honum boltanum, en Pétur braut á Ellerti. Erlendur Eiríksson gaf Pétri reisupassann og dæmdi réttilega víti. Arnór Sveinn Aðalsteinsson steig á punktinn og skoraði. Þannig var staðan í hálfleik. Arnór Sveinn bætti svo við öðru marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og lokatölur 3-0. Með sigrinum fer Breiðablik upp í annað sætið, en þeir eru með þrettán stig, jafn mörg og Fylkir sem er á toppnum. FH er í þriðja sætinu með tólf stig þegar einn leikur er eftir. Í Keflavík var Stjarnan í heimsókn. Jeppe Hansen skoraði bæði mörk Stjörnunnar, en bæði mörkin komu á síðasta stundarfjórðungnum. Daninn var að skora í þriðja leiknum í röð. Með sigrinum fer Stjarnan í annað sætið, en þeir eru með tíu stig eftir fimm leiki. Keflavík er í fimta sæti með sjö stig eftir sex leiki.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Supercross Atlanta úrslit. Sport Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Styrkir til VÍK Sport Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Fleiri fréttir Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Sjá meira