„Ekki loka augunum“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. júní 2014 15:30
Víðs vegar um borgina má sjá styttur með bundið fyrir augun, en slagorð dagsins í dag er „Ekki loka augunum.“ Er þetta gert til að vekja athygli á hylmingu ríkisstjórna yfir pyndingum og er þetta gert meðal annars á Írlandi, í Þýskalandi og í Sviss. Þrjátíu ár eru liðin frá því að samningur um bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð tók gildi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Í tilefni þess er alþjóðlegur dagur til stuðnings fórnarlömbum pyndinga í dag og hefur Amnesty International ýtt úr vör herferð gegn pyndingum. Frá árinu 1984 hafa 155 ríki fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og hafa þar af 142 lönd sætt rannsókn Amnesty International. Sú rannsókn leiddi í ljós að í dag, árið 2014, stunda 79 þessara ríkja enn pyndingar. Fjörutíu ríki Sameinuðu þjóðanna hafa ekki samþykkt samninginn. Bannið nær þó til allra ríkja, óháð því hvort þau hafa samþykkt alþjóðasáttmála sem kveða á um bannið eður ei.„Bannið á við um allar kringumstæður, án nokkurra undantekninga, og ekki er hægt að afnema það þó að um stríðsástand ræðir eða þegar almennt neyðarástand ríkir. Pyndingar eru aldrei réttlætanlegar. Þær eru villimannslegar og siðlausar, og ein stærsta smán mannkyns,“ segir í tilkynningunni frá Amnesty. Síðustu tvö sumur hefur Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International haldið pyndingaaðgerð á Austurvelli í tilefni af alþjóðlega deginum. Næsta laugardag, 28. júní, klukkan 15:00-18:00 mun Ungliðahreyfingin halda slíka aðgerð í þriðja skiptið og að þessu sinni verður athyglinni beint að hylmingu ríkisstjórna yfir pyndingum með táknrænni aðgerð og undirskriftasöfnun.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira