Vilja sameina skóla- og frístundastarf við Hagatorgið Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 27. júní 2014 07:00 Ómar er aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Mynd/Valgarður „
Við höfum bent á það að það væri dauðafæri að leggja saman þá aðila í Vesturbænum sem eru eða munu vera í húsnæðiskröggum og reyna að byggja öflugan kjarna í kringum þetta,“ segir Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Vísir hefur flutt fregnir af húsnæðisvanda Hagaskóla að undanförnu. Ómar hefur viðrað hugmyndir sínar um að það myndi horfa til hagræðingar að sameina starfsemi ýmissa aðila sem koma nálægt skólastarfi barna í Vesturbænum á sama stað við Hagatorg. „Það eru ekki bara við sem erum í húsnæðisþrengingum hér í Vesturbænum eða verðum í fyrirsjáanlegri framtíð í miklum húsnæðisvandræðum ef fer sem horfir varðandi þéttingu byggðar hér í Vesturbænum,“ útskýrir Ómar. „Heldur eru líka allavega tónlistarskólinn, lúðrasveitin og frístundamiðstöðin í húsnæðisþrengingum. Líka Melaskóli hérna við hliðina á okkur, það er mjög þröngt þar. Mér fyndist langeðlilegast að horfa á þetta allt í sameiningu,“ segir hann. „Við ættum að geta fengið öflugra skólastarf og öflugra starf hjá hinum aðilunum líka.“ Hann bendir á að stór hluti barna og unglinga í hverfinu séu staðsettir við Hagatorgið í Melaskóla og Hagaskóla. „Stærsti hópur barnanna er hér yfir veturinn og yfir daginn, hér er börnunum safnað saman.“ En Melaskóli og Hagskóli eru stærstu skólarnir af þeim fjórum barnaskólum sem eru í Vesturbænum, hinir eru Vesturbæjarskóli og Grandaskóli.Segir að nú verði að bregðast við „Ég geri ráð fyrir því að það væri einnig hagstæðast að byggja upp á einum stað, hér er svosem pláss, starfsemi þessara aðila sem ég nefni fer vel saman og getur orðið dýnamískari ef hún er á einum stað heldur en dreift um allan Vesturbæinn,“ segir Ómar og bendir á að þá myndi allt hið svokallaða skutl sem fylgir tómstundum verða minna. „Skóladagurinn getur orðið samfelldari, allavega í skóla, frístunda og tónlistarnámi.“ Sérðu þá fyrir þér að nýta Hagatorgið, það stóra svæði sem fer þar til spillis? „Það er náttúrulega mjög spennandi hugmynd. Það gengur auðvitað ekki upp með þá umferð sem er um það núna,“ segir Ómar en bendir á að mikið svæði sé til staðar annars staðar við Hagatorg. „Í einhverri útópíu væri mjög skemmtilegt að sjá Hagatorgið nýtt. Það er almennt ekki byggt á umferðareyjum en samt væri það spennandi ef umferðinni væri stýrt einhvern veginn öðruvísi í gegnum skólasvæðið.“ Hann segir að nú verði að fara að bregðast við. „Skólarnir eru orðnir mjög þröngir.“ „Við erum svo sannarlega tilbúin til samstarfs og sjáum fullt af tækifærum.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira