Fótbolti

Ekki búið að ákveða neitt með Jón Daða

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson.
Eyjólfur Sverrisson staðfesti við Vísi að óvíst væri hvort Jón Daði Böðvarsson myndi leika með A-landsliðinu eða U21 árs landsliðinu í næsta mánuði. Er þetta í annað skipti sem þetta gerist en síðast veitti KSÍ Eyjólfi heimild til þess að velja leikmenn úr A-landsliðinu enda hafði liðið fallið úr leik í undankeppninni á þeim tíma.

Annað er upp á teningnum núna og sagði Eyjólfur að þeir myndu ræða þetta þegar að því kæmi.

„Við erum ekkert búnir að ræða þetta, við skoðum þetta þegar nær dregur. Okkar hugmynd er auðvitað að gera það besta fyrir bæði landslið og núna skiptir þetta máli fyrir bæði lið ólíkt stöðunni síðast,“ sagði Eyjólfur sem var glaður að sjá Jón Daða skora í sínum fyrsta mótsleik.

„Ég er auðvitað bara ánægður að hann sé kominn svona langt. Þetta er frábær strákur sem er samviskusamur og á eftir að ná langt. Við erum í því að búa til landsliðsmenn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×