Drekkingar minka gegn anda laganna Svavar Hávarðsson skrifar 27. júní 2014 00:01 Heildarveiði á landinu frá 2000 til 2005 var um 7.000 minkar árlega en hefur farið minnkandi og var komin niður í 3.000 dýr árið 2012. mynd/sigrún
Dýraverndunarsamband Íslands (DÍ) gagnrýnir harðlega að í nýjum lögum um velferð dýra sé gefin heimild til að drekkja mink í gildruveiði, en aflífun dýra með drekkingu er annars með öllu óheimil. Drekking minks er réttlætt með því hversu skilvirk og ódýr aðferðin hefur reynst. „Þetta er siðlaust og óboðlegt. Menn eru dæmdir þegar hundi er drekkt vegna þess hversu grimmileg aðferðin er,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður DÍ, og bætir við að undanþágan gangi gegn anda laganna sjálfra um að dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti, og forðast beri að valda þeim óþarfa þjáningum eða hræðslu. Hallgerður segir að það orki vægast sagt tvímælis að ein dýrategund á Íslandi sé ofurseld þessum andstyggilega dauðdaga, með því fororði að hún sé skaðleg og óvelkomin. Félagið hafi skilning á því að stofni minks sé haldið í skefjum, en ekkert réttlæti að það sé gert með þessum hætti. Löggjöf Norðurlandaþjóða endurspegli þetta og ástæða til að læra af því. Sif Traustadóttir dýralæknir skrifar í nýjasta tölublaði Dýraverndarans um meðferð þeirra dýra sem skilgreind eru sem meindýr. Þar minnir hún á að búið er að sýna fram á með óyggjandi hætti að taugakerfi spendýra sé í engu frábrugðið taugakerfi manna. Sársaukaskyn þeirra sé því það sama. Um minkinn og nýju dýravelferðarlögin segir Sif: „Þarna er ein dýrategund tekin fyrir og látin þola þjáningar sem ekki eru taldar boðlegar þegar um önnur dýr er að ræða.“ Blekið á nýjum lagatexta er vart þornað því ný lög um dýravelferð voru samþykkt á liðnum þingvetri. Þessi aðferð við að aflífa mink kom mjög við sögu í lagavinnunni, bæði innan atvinnuveganefndar og í umsögnum við frumvarpið. Þar kemur fram að minkurinn var sérstaklega tekinn út fyrir sviga og það gagnrýnt hart af dýraverndunarsinnum og fleirum. Á móti kemur að í umsögnum Landssambands veiðifélaga, Reynis Bergsveinssonar, sem fann upp svokallaða minkasíu sem um ræðir, og Æðarræktarfélags Íslands koma fram gagnstæð sjónarmið.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira