Kennarasambandið gagnrýnir Hvítbók menntamálaráðherra Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 21. júní 2014 09:00 Í Hvítbók er eitt meginmarkmiðið að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44% í 60%. vísir/gva
Kennarasamband Íslands (KÍ) gagnrýnir þær leiðir sem á að fara til að ná markmiðum sem sett eru fram í Hvítbók Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra, um umbætur í menntamálum, og segja sparnaðaranda svífa yfir vötnum. Tvö meginmarkmið eru sett fyrir árið 2018. Annars vegar um aukna lestrarhæfni nemenda. Hins vegar að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44 prósent í 60 prósent. Markmiðunum á að ná með því að endurskipuleggja námstíma og stytta nám til lokaprófa, draga úr brotthvarfi og breyta skipulagi starfsmenntunar. KÍ gagnrýnir þessa leið og telur ekki að stytting námstíma sé svarið við vandanum. „Í Hvítbók er mikið gert úr að vísa til rannsókna í menntamálum en þegar það kemur að styttingu námstíma þá hafa engar rannsóknir verið gerðar á því og ekkert sem styður þá fullyrðingu að það sé góð leið,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ.Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, segir sparnaðaranda svífa yfir vötnum.vísir/stefánAðalheiður bendir á að stuðningur við nemendur, fjölbreyttara námsframboð, aukin starfs- og námsráðgjöf og minni námshópar séu vænlegri leiðir til árangurs. Einnig að skima fyrir brotthvarfseinkennum mjög snemma á skólagöngu nemenda og vinna kerfisbundið með forvarnir frá grunnskólastigi yfir í framhaldsskóla. Allt er þetta hluti af menntastefnu sem samþykkt var árið 2008 en hefur, samkvæmt KÍ, að stórum hluta legið niðri vegna efnahagskreppunnar. „Það er ekkert komið inn á fjármuni í Hvítbók. Ef meiningin er að koma menntalögunum í framkvæmd, sem KÍ fagnar, kostar það fjármuni. Mér finnst skrýtið að þær kröppu aðstæður sem skólarnir búa við séu ekki settar í samhengi og því finnst mér vanta ákveðna veruleikatengingu í Hvítbókina,“ segir Aðalheiður og bætir við að sparnaðarandi svífi yfir vötnum þótt það komi ekki beinlínis fram. „Illugi hefur sagt að hægt sé að spara með því að stytta námið. Þetta finnst okkur ekki boða gott fyrir menntun nemenda og gæði námsins. Nógu er búið að ganga harkalega að menntakerfinu enda hefur verið sparað þar frá því fyrir efnahagshrun.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira