Hlaupa upp Esjuna ellefu sinnum í röð Snærós Sindradóttir skrifar 18. júní 2014 00:01 Mikill fjöldi fólks hljóp upp Esjuna í blíðviðri í fyrra.
Fjöldi fólks hyggst hlaupa upp Esjuna á laugardag í fjallahlaupinu Mt. Esja Ultra sem haldið er í þriðja sinn í ár. Þrjú erfiðleikastig standa áhugasömum hlaupurum til boða en minnst er hægt að hlaupa upp Esjuna tvisvar sinnum, samtals fjórtán km leið með 1.200 metra hækkun. Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur er að skipuleggja hlaupið. „Þetta er alveg hægt. Það hafa næstum allir klárað sem hafa byrjað þetta og upplifunin hefur verið góð hjá fólki. Þetta er líka miklu skemmtilegra en það hljómar.“ Elísabet segir að fólk af öllum stærðum og gerðum hafi tekið þátt í hlaupinu. „Það er mikil stemning og þátttakendur eru duglegur við að hvetja hver annan áfram þegar þeir mætast á leiðinni. Flestir sem hafa farið í þetta hafa reynslu af lengri hlaupum og hafa hlaupið erlendis, til dæmis í fjallahlaupum. Aðalatriðið er að fara ekki of geyst af stað.“ Fimm manns hafa nú þegar skráð sig í ellefu ferða hlaupið en aðeins einn þeirra, Friðleifur Friðleifsson, hefur hlaupið það áður. Þá setti hann nýtt brautarmet í fyrra og hljóp tíu ferðir á níu klukkustundum og 43 mínútum. „Tilgangurinn með hlaupinu er punktasöfnun. Keppendur geta fengið punkta sem gefa inngöngu í erfiðari hlaup erlendis,“ segir Elísabet. Síðasta hringnum í stóra hlaupinu var bætt við vegna hertra skilyrða erlendis frá. Við það bættust sjö km við leiðina. Átján ára aldurstakmark er í fimm hringja hlaupið en tuttugu ára aldurstakmark gildir í stóra ellefu hringja hlaupið. Hlaupahringurinn hefst við skógræktina við Esjuhlíðar en svo er hlaupið upp að steini á toppi Esjunnar og aðra leið niður. Elísabet segir að búist sé við góðri þátttöku í hlaupið í ár en fjallahlaup hafa verið að auka vinsældir sínar jafnt og þétt. „Þetta er hrikalega skemmtilegt og stemningin verður góð.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira