Enn þokast í samkomulagsátt Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. júní 2014 07:00 Günther Oettinger ræddi við blaðamenn að loknum fundi fulltrúa orkufyrirtækjanna rússnesku og úkraínsku í gær. Fréttablaðið/AP
Rússland og Úkraína eru í gær sögð hafa náð markverðum árangri í viðræðum um lækkun á afhendingarverði gass og um skuldir ríkisstjórnar Úkraínu við Rússland vegna fyrri gasviðskipta. Tilgangur viðræðnanna er að koma í veg fyrir að snurða hlaupi á þráðinn við afhendingu gass, sem einnig gæti haft áhrif á Vestur-Evrópu, að því er haft er eftir embættismanni hjá Evrópusambandinu. Framkvæmdastjórar ríkisorkufyrirtækja landanna tveggja komu sér saman um tillögu sem hefði í för með sér lækkun á verði gass til Úkraínu um leið og fallist yrði á endurgreiðsluáætlun vegna skuldar landsins við Rússland, segir orkumálastjóri Evrópusambandsins, Günther Oettinger, sem hafði umsjón með viðræðunum í Brussel. Rússneska orkufyrirtækið Gazprom og Naftogaz í Úkraínu bera nú samkomulagsdrögin undir sérfræðinga sína og leita samþykkis hluthafa, sem eru ríkisstjórnir hvors lands um sig. Að því loknu segir Oettinger að seinni lota samningaviðræðnanna geti hafist. Hann vildi þó ekki greina frá því hvað nýtt gasverð til Úkraínu yrði, en sagði að það yrði undir 485 Bandaríkjadölunum sem Úkraína greiðir nú fyrir hverja 1.000 rúmmetra af gasi, en yfir afsláttarverði upp á 268 dali sem Rússar hafi eitt sinn boðið. Til að tryggja afhendingu ætti að halda nýju verði stöðugu í eitt ár.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira