Lífið

Tískufjör í Hörpu

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Reykjavík Fashion Festival fór fram með pomp og prakt um helgina.



Fjölbreytnin var í fyrirrúmi þar sem áhorfendur sáu allt frá rómantískri sveitasælu Farmers Market til rokkaðs og reykfyllts tískupallsins hjá Guðmundi Jörunds­syni.



Þeir átta hönnuðir sem tóku þátt í tískuhátíðinni í ár tóku verkefnið alvarlega og sýndu það að framtíðin er björt í fatahönnun á Íslandi í dag. 



Rómantísk sunnudagsstemning


Farmers Market með Bergþóru Guðnadóttur í fararbroddi gerði það sem þau gera best á sýningu sinni á laugardaginn.

Eins og búast mátti við var ullin í lykilhlutverki í sýningunni þar sem stórri mynd af sveitakirkju var varpað á bak við tískupallinn og lifandi tónlist ómaði undir.

Peysur, silkikjólar, gallaskyrtur, hnésíð pils og vaxjakkar er það sem koma skal frá merkinu sem hefur fest sig í sessi hér á landi og víðar. Fléttuhárgreiðslur og náttúruleg förðun fyrirsætanna tónaði vel við fatnaðinn.

Reykjavík Fashion Festival tískusýning Harpa


Litríkur flísfatnaður


Útivistarmerkið Cintamani sýndi í fyrsta sinn fatalínu sína á Reykjavík Fashion Festival í ár.

Sumir settu spurningarmerki við það að útivistarmerki færi á pallana á RFF enda sýningin frábrugðin hinum. Fyrirsæturnar voru eins og þær væru nýkomnar niður af fjallinu, með rjóðar kinnar og úfið hár.

Litadýrðin var mikil hjá útivistarmerkinu sem sýndi ullarfatnað, flíspeysur, ullarsokka og fylgihluti í fjallgönguna. Anna Clausen sá um stíliseringu og á hrós skilið fyrir flotta heildarmynd.

Reykjavík Fashion Festival tískusýning Harpa


Kvenlegar línur og áttundi áratugurin
n

Rebekka Jónsdóttir, sem hannar undir merkinu REY, var með glæsilega sýningu þar sem andi áttunda áratugarins sveif yfir vötnum.

Hún hafði sjálf lýst línunni sem hyllingu til kvenskörunga frá gullaldartímabili Hollywood og fór það ekki fram hjá neinum. Samfestingar með víðum skálmum, flaksandi efni, áberandi mitti, barðastór skyggni og skemmtilegar prjónapeysur.

Vönduð lína þar sem margir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Reykjavík Fashion Festival tískusýning Harpa


Dökkur og drungalegur Jör


Jör by Guðmundur Jörundsson var rúsínan í pylsuendanum á tískudeginum í Hörpu. Það kvað við nýjan tón hjá Jör sem hingað til hefur verið einna helst þekktur fyrir jakkaföt á dömur og herra.

Dúndrandi rokktónlist, blikkandi neonljós og reykfylltur tískupallurinn settu sinn svip á goth-lega fatalínu Guðmundar.

Vel sniðnar yfirhafnir, rifnar gallabuxur, síðar skyrtur og buxur með klauf er það sem koma skal frá Jör. Hárgreiðslan og förðunin settu sinn svip á sýninguna sem stóð upp úr hvað varðar heildarsvip og útfærslu á hátíðinni.

Vel gert hjá Jör-teyminu. 

T'iska, harpa, hönnunarmars,


Tímalaust og fágað


Þær Katrín Kára og Elínrós Líndal sóttu innblástur sinn til stríðsáranna fyrir þessa nýju línu Ellu.

Upphaf sýningarinnar gaf strax tóninn fyrir það sem koma skyldi þegar fyrirsætur, klæddar fallegum síðum ullarkápum með háum kraga, þrömmuðu taktfast inn pallinn.

Blátt svart og grátt var litaspjaldið í fatalínunni þar sem allar flíkurnar voru útpældar, vel sniðnar og klassískar.

Fatalínan og sýningin voru óður til sterku konunnar sem sást í öllu frá förðun til skóbúnaðar fyrirsætanna. Sýningin endaði svo á laginu Independent Women með Beyoncé til að kóróna þemað. 

Reykjavík Fashion Festival tískusýning Harpa


Flott frumraun Magneu


Fatahönnuðurinn Magnea Einars var að þreyta frumraun sína á RFF í ár en prjónið leikur stórt hlutverk í hennar hönnun.

Sýningin var vel gerð og greinilega búið að spá í hvert smáatriði. Litaspjaldið í línunni var svart, hvítt og fjólublátt með prjónasettum, pilsum, peysum sem og munstruðum silkikjólum.

Þá voru síðar prjónapeysur og vesti einkar girnileg fyrir næsta vetur.

Fyrirsæturnar báru allar skemmtilega hatta sem gaf sýningunni flottan blæ. Það verður gaman að fylgjast með Magneu í framtíðinni.

Reykjavík Fashion Festival tískusýning Harpa


Leður og prjón frá Zisku


Sýning Hörpu Einarsdóttur, sem hannar undir nafninu Ziska, hófst á skemmtilegu tískumyndbandi með hestum í aðalhlutverki.

Fatalínan sjálf einkenndist af leðri, prjóni og silki og var svarti liturinn ríkjandi við hvítan, mintugrænan og bleikan. Harpa er þekkt fyrir ævintýraleg munstur sín sem auðvitað fengu pláss í þessari línu.

Hvítur leðurkjóll stóð upp úr á sýningunni sem og stutt prjónapeysa með flottu munstri. Þá vöktu útskorin leðurhálsbönd athygli.



Kynþokkafullir kjólar og flott prent


Margir biðu spenntir eftir að sjá sýningu Sigga Maiju sem er fyrsta fatalína Sigríðar Maríu Sigurjónsdóttur undir eigin nafni.

Sýningin var glæsileg og einkenndist línan af þröngum buxum með rennilás niður kálfann og kvenlegum kjólum með bert í bakið í litríkum munstrum.

Sigríður María hefur áður unnið fyrir Jör og Kron Kron en hún sótti innblástur til Parísar í kringum 1920 fyrir eigin línu.


Tengdar fréttir

Adrenalínið á fullu baksviðs

Undirbúningur fyrir Reykjavík Fashion Festival hefur staðið yfir undanfarnar vikur. Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir og Fríða María Harðardóttir förðunarfræðingar bera ábyrgð á allri förðun í stressinu baksviðs á morgun.

Dagur í lífi Fríðu Maríu sminku

Fríða María Harðardóttir er ein af eftirsóttustu förðunarfræðingum landsins en hún hefur yfirumsjón með förðun fyrirsætanna á Reykjavík Fashion Festival um helgina ásamt Guðbjörgu Huldísi.

Mætti með fjölskylduna með sér

Kaupsýslumaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson mætti ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Ólafsdóttur og tveimur börnum, á sýningu Guðmundar Jörundssonar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×