Segir Siggu hafa gengið beint í gildru listamannsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. júní 2014 10:19 Elliði Vignisson og límmiðinn. Vísir/Pjetur „
Mikið er þetta vel heppnaður gjörningur hjá listamanninum sem setti þennan límmiða í bílinn. Með þessu nær hann að kristalla strauma samfélagsins innan forms naumhyggjunnar,“ ritar Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, á Fésbókarsíðu sína. Um er að ræða viðbrögð bæjarstjórans við frétt Vísis frá því í gær um límmiða í afturrúðu bíls við bryggjuna í Heimaey. „Lækkum skatta Skjóttu listamann,“ eru skilaboðin á límmiðanum sem vakti athygli listamannsins Siggu Jónsdóttur í Eyjum í gær. „„Mig grunar að þetta tengist kosningunum en ég veit það ekki,“ sagði Sigga í samtali við Vísi í gær. Hún taldi límmiðann tengjast umræðunni um listamannalaun. „Hún er svolítið á villigötum. Forgangsröðunin hjá fólki er misjöfn og kannski er forgangsröðunin úti í Eyjum önnur. En mér finnst þetta svolítið langt gengið,“ segir Sigga. Benti hún á að greinilega hefði verið töluverð fyrirhöfn að koma miðanum fyrir. Elliði er sáttur við „gjörninginn hjá listamanninum“ sem setti upp límmiðann sem sé í anda naumhyggjunnar. „Í takt við þá stefnu beitir hann einsleitum einingum eins og ódýru blaði og einföldu letri. Umgjörðin er svo bíll á atvinnusvæði. Honum tekst með þessu að sniðganga tilfinningalega túlkun og sjónrænar blekkingar en leggja þess í stað áherslu á samfélagsleg átök.“ Sigga birti myndina á Instagram í gær og bætti við merkinu #xD. „Sigga Jónsdóttir gengur síðan beint í gildru listamannsins og "hastaggar" þetta með vísan í XD,“ skrifar Elliði. Um algert meistaraverk sé að ræða og hljóti eigandinn að verða tilnefndur til listamannalauna. „Þar með nær verkið einnig aukinni hringvísunardýpt.“ Post by Elliði Vignisson.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira