Hálendisvegir lokaðir vegna bleytu í jarðvegi 23. júní 2014 08:00 Vegurinn að Herðubreiðarlindum verður líklega opnaður í byrjun júlí. Fréttablaðið/GVA
Hálendisvegum á Íslandi er mörgum hverjum enn haldið lokuðum vegna bleytu í jarðvegi. Vegagerðin gefur næstum daglega út kort þar sem skyggð eru svæði þar sem allur akstur er bannaður. Þar kemur fram að akstur sé bannaður til að komast hjá vegaskemmdum vegna aurbleytu. Mikill snjór eða bleyta er enn á hálendinu sem gerir það að verkum að vegir geta verið afar votir. Gætu þeir af þeim sökum orðið fyrir miklu tjóni af bílaumferð í þannig tíðarfari. Einnig eru sumum vegum í friðlandi lokað þó að vegir geti tekið við umferð. Þá er það oft svo að friðlýstu svæðin gætu skemmst vegna ágangs ferðamanna. Bannsvæði Vegagerðarinnar nær yfir nær allt miðhálendi landsins, frá Mýrdalsjökli í suðri, að Vatnajökli í austri, og nær yfir allt hálendið norðan Vatnajökuls. Einnig eru Eyvindarstaðaheiði og Arnarvatnsheiði nánast algjörlega lokaðar. Kjalvegur hefur þó verið opnaður, auk Veiðivatnaleiðar (F228), Jökulheimaleiðar (F229) og Landmannaleiðar (F225). Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar hafa þessar lokanir ílengst sums staðar fram eftir öllu sumri. Sumar leiðir hefur verið mögulegt að opna í lok júlí, aðrar mun fyrr. Á vef Vegagerðarinnar er að finna allar upplýsingar um hálendislokanir og afléttingu þeirra þegar líður á sumarið.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Erlent Fleiri fréttir „Áttaði mig fyrst á þessu þegar ég kom heim“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Sjá meira