Flæðir yfir friðland fugla í Svarfaðardal Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júní 2014 20:30
Óttast er að varp fugla spillist í friðlandinu í Svarfaðardal þar sem Svarfaðardalsá flæðir nú yfir bakka sína. Miklir vatnavextir eru í ám á Norðurlandi þessa dagana þegar hlýindi og rigningar bræða óvenju mikinn snjó í fjöllum eftir veturinn. Svarfaðardalsáin flæðir yfir tún og engi og er neðsti hluti dalsins eins og hafsjór yfir að líta. Þar eru girðingar á kafi og sjá mátti fuglaskoðunarhús umflotið vatni. Það er reyndar árviss viðburður að áin flæði yfir bakka sína, að sögn Kristjáns Eldjárns Hjartarsonar, byggingarfræðings á Tjörn. Flóðin séu þó óvenju snemma núna og hann býst við að áin geti vaxið mun meira, ef spár rætast og það verði hlýtt og jafnvel fari að rigna meira. Nóg sé af snjó í fjöllunum, þar sé raunar óvenju mikill snjór.Neðsti hluti Svarfaðardals er eins og fjörður þessa dagana.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Ekki er óttast að mannvirki skemmist að ráði. Kristján segir að þó megi alltaf búast við einhverju tjóni næst ánni á túnum og nytjaengjum. Þá liggi golfvöllur Svarfdælinga undir álagi en hann stendur við ána. Helstu áhyggjur manna beinast að fuglafriðlandi Svarfdæla í neðanverðum dalnum en þar verpa um 40 tegundir fugla, að sögn Kristjáns. „Þetta er auðvitað allt saman undir og ég gæti alveg ímyndað mér að dálítið af gæsa- og andahreiðrum fari á kaf. Þetta var að vísu óvenju snemma sem varp hófst hér í vor og ég vona það nú að gæsir séu flestar búnar að koma ungum þannig á legg að það bjargist. En þeir fuglar sem hafa seinna komið þeir eru í voða með þetta,” segir Kristján.Óvenju mikill snjór er í fjöllum ofan Svarfaðardals og er talið að áin geti vaxið enn meira á næstu dögum, ef spár rætast um hlýindi og rigningu.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira