Íslensk stjórnvöld styðja friðaráætlun í Úkraínu Randver Kári Randversson skrifar 24. júní 2014 15:21 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra styður friðaráætlun Petro Poroshenko, forseta Úkraínu. Vísir/Pjetur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fagnar því að Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, hefur lagt fram áætlun um hvernig stilla megi til friðar í landinu. Þetta kemur fram í fréttailkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld styðja friðaráætlunina sem sé mikilvægur grundvöllur þess að ofbeldi í austurhluta Úkraínu verði stöðvað. Hann segir áætlunina staðfesta að Poroshenko forseti leggi höfuðáherslu á að tryggja frið og öryggi fyrir alla íbúa landsins. Íslensk stjórnvöld skora á alla hlutaðeigandi málsaðila í Úkraínu að styðja friðaráætlunina og virða ákvæði hennar þegar í stað. Í því sambandi er yfirlýstur stuðningur rússneskra stjórnvalda við áætlunina mikilvægt skref, sem og tilkynning forseta Rússlands um að hann hafi farið fram á það við rússneska þingið að það afturkalli heimild til hernaðaríhlutunar í Úkraínu. „Það er afar brýnt að friðaráætlunin nái fram að ganga þannig að úkraínsk stjórnvöld geti unnið að nauðsynlegum umbótum í efnahagsmálum og að þeim stjórnkerfisbreytingum sem forsetinn hefur boðað. Á fundum mínum í Kænugarði í mars undirstrikaði ég mikilvægi þess að leita allra leiða til að tryggja friðsamlega lausn á deilunum í landinu. Ég lagði líka sérstaka áherslu á lýðræðisþróun, hversu áríðandi það er að virða mannréttindi, að réttur allra þjóðarbrota í landinu séu tryggður og að efnahagslíf Úkraínu verði endurreist til hagsbóta fyrir alla landsmenn“ segir Gunnar Bragi. Gunnar Bragi segir Ísland leggja sitt af mörkum til að róa öldurnar í Úkraínu með framlagi til eftirlitsverkefnis Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Hann segir mikilvægt að tryggja óhindraða starfsemi ÖSE og annarra alþjóðastofnana í landinu og það sé forkastanlegt að eftirlitsfólki á vegum ÖSE sé enn haldið í gíslingu í austurhluta landsins. Hann skorar á þau öfl sem standa að baki gíslatökum að leysa alla einstaklinga úr haldi þegar í stað.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira