Sjúkraliðar vilja sömu hækkun og sjúkraliðar hjá ríkinu fengu Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. maí 2014 11:00 Á hjúkrunarheimili 400 til 500 lögðu niður störf í gær. Vísir/Vilhelm
Nær engin hjúkrunarheimili innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu munu geta orðið við kröfum Sjúkraliðafélags Íslands og SFR um hærri laun afturvirkt fái þau ekki launabætur frá ríkinu. Þetta segir Gísli Páll Pálsson, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Markar hjúkrunarheimilis.Gísli Páll PálssonSjúkraliðar vilja sömu hækkun og sjúkraliðar hjá ríkinu fengu með jafnlaunaátaki í fyrra, það er 4,8 prósent. Þeir vilja jafnframt 2,8 prósenta hækkun eins og aðrir fá með nýjum samningum. „Þetta snýst um tugi milljóna króna. Hjúkrunarheimilin verða ekki gjaldþrota en við munum ekki geta borgað út laun ef við fáum ekki launabætur frá ríkinu fyrir samsvarandi tímabil. Sóltún er eina hjúkrunarheimilið sem er með alvöruþjónustusamning við ríkið. Það fær launabætur óháð öllum samningum. Mér þætti ólíklegt að nokkurt annað hjúkrunarheimili gæti gert þetta,“ segir Gísli Páll.Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir það ekki hlutverk starfsmanna stofnananna að sjá um að þær hafi möguleika á að reka sig. „Ríkisstarfsmenn hafa verið með 4,8 prósentum hærri laun síðan í fyrra. Okkar launakröfur snúast um að fá sambærilega hækkun og jafnlaunaátakið var á sínum tíma og svo hækkunina samkvæmt kjarasamningunum við ríkið nú í ár.“Kristín Á. GuðmundsdóttirKristín kveðst bjartsýn á að samningar náist fyrir fimmtudag. Þá er boðað ótímabundið verkfall sjúkraliða og félaga í SFR á um 20 hjúkrunarheimilum. Í gær lögðu 400 til 500 starfsmenn niður vinnu á hjúkrunarheimilunum. Gísli Páll segir starfsemina á Mörk hafa gengið ágætlega miðað við aðstæður. „En verði ekki samið fyrir fimmtudag er ég hr æddur um að það geti orðið langt verkfall.“ Á vef SÁÁ segir að starfsemi á Vogi, Staðarfelli og Vík muni að óbreyttu stöðvast ef til allsherjarverkfalls kemur. Göngudeildir SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri voru lokaðar í gær vegna sólarhrings vinnustöðvunar ráðgjafa og sjúkraliða.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Sjá meira