Lorca og skóarakonan og Bergmál 5. maí 2014 11:30 Lorca og skóarakonan er leikgerð Eddu Björgvinsdóttur á verki eftir Federico Garcia Lorca. Það var frumsýnt á Sólheimum á sumardaginn fyrsta. Mynd/Leikfélag Sólheima
Leikfélag Sólheima sýnir leikverkið Lorca og skóarakonuna í Þjóðleikhúsinu annað kvöld klukkan 19.30. Leikgerðin er unnin í samstarfi við AFANIAS-leikhópinn frá Madrid. Í verkinu túlka leikendur stemningu frá Spáni og byggja á verki eftir Federico García Lorca í leikgerð og leikstjórn Eddu Björgvinsdóttur. Leikhópurinn AFANIAS túlkar stemningu frá Íslandi og byggir á verkum Halldórs Laxness og Auðar Jónsdóttur. Verkið nefnist Bergmál og er dansverk. Leikfélag Sólheima og AFANIAS frá Madríd hafa unnið að sýningunni saman síðan í september. Bæði leikfélögin eru skipuð leikurum sem eru ýmist fatlaðir eða ófatlaðaðir og er Sólheimaleikhúsið elsta starfandi leikfélag í heiminum sem er þannig samsett. Það hefur frumsýnt leikverk á sumardeginum fyrsta í 84 ár. Sólheimabúar munu síðan endurgjalda heimsókn Spánverjanna í lok júní. Þá verða verkin sýnd í Mira-leikhúsinu í Madríd.
Menning Mest lesið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira