Fór í mál við flugfélag eftir að hafa lent í Grenada en ekki Granada Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. júní 2014 09:38 Maðurinn var ekki sáttur með tilboð British Airways og ætlar því í mál. Vísir/Getty
Bandarískur tannlæknir ætlaði að skella sér til borgarinnar Granada á Spáni en fyrir mistök fór hann til ríkisins Grenada í karabíska hafinu. Hann hefur nú farið í mál við British Airways og ætlar að sækja málið sjálfur, eins og bandaríska fréttastofan NBC greinir frá. Tannlæknirinn Edward Gamson hafði bókað sæti á ráðstefnu í Portúgal og ætlaði að skoða Granada í leiðinni. Hann segist hafa tekið það skýrt fram þegar hann pantaði flugið. Gamson flaug frá Maryland í Bandaríkjunum og millilenti í London. Þar steig hann svo upp í vél og tók eftir því, þegar 20 mínútur voru liðnar af fluginu, að vélin var að fara í vesturátt. „Af hverju erum við að fara í vestur þegar við erum að fara til Spánar,“ spurði hann flugþjón um borð og fékk svarið: „Spánar? Við erum að fara til Karíbahafs.“ Gamson segist ekki hafa getað gert sér grein fyrir mistökum flugfélagsins, því skammstöfun flugvallanna sem hann ferðaðist í gegnum var ekki á flugmiðanum hans. Þegar hann var kominn til Grenada fór hann að vinna í því að komast til Portúgals, á ráðstefnuna. Honum tókst að komast þangað en tapaði talsverðum fjármunum því hann hafði verið búinn að greiða fyrir lestarferðir, hótelgistingu og fleira á Spáni áður en hann lagði af stað. British Airways bauð honum 376 dali (um 42 þúsund krónur) og inneign hjá fyrirtækinu í flugmiðum. Gamson segist hafa tapað um 34 þúsund dölum (3,8 milljónum króna). Hann ætlar að sækja málið sjálfur og sagði við NBC: „Ég er ekki menntaður lögfræðingur, ég er tannlæknir. En ég þekki rétt frá röngu – en ég veit reyndar ekki hvort það skipti einhverju máli í þessu samhengi. Ég hélt bara að flugfélagið myndi vilja bæta mér skaðann, því þetta eru greinilega mistök.“ Breska flugfélagið sneri strax vörn í sókn með því að færa málaferlin upp um dómstig. Málið fer fyrir alríkisdómara í Bandaríkjunum þar sem alþjóðlegar reglur um flug gilda. Talsmaður British Airways vildi ekki tjá sig um málið við NBC, því málaferlin eru enn í gangi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira