Hefur lengi haft áhuga á Íslendingasögunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júní 2014 21:59 Guðsorðabók frá árinu 1680 Mynd/Jón Viðar „
Ég hef lengi haft áhuga á Íslendingasögunum og hef einsett mér að safna fyrstu prentun af sem flestum þeirra,“ segir Jón Viðar Arnþórsson í samtali við Vísi en honum áskotnaðist á dögunum forlátt eintak af Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Bókin er frá árinu 1697 og er því 317 ára gömul. Jón segist vera búinn að koma sér upp dágóðu safni fornbókmennta en í fórum hans eru meðal annars fyrsta prentun af Egilssögu Skallagrímssonar, Brennu-Njálssögu og Laxdælu. Hann tók að safna bókunum fyrir tveimur árum síðan en áhuginn á Íslendingasögunum hafi þó lengi blundað í honum. „Ég bjó í Reyholti í 6 ár þegar ég var ungur en þar bjó einmitt Snorri Sturluson. Þegar ég var 2 ára gamall skýrði ég meira að segja bangsann minn Snorra í höfuðið á sagnaritaranum,“ segir Jón kíminn. Bækurnar hefur hann flestar nálgast í gegnum fornbókabúðina Bókina á Hverfisgötu en Jón segir starfsmenn búðarinnar hafa verið honum liðtækir. Erfitt getur þó reynst að hafa uppi á bókunum og leitin getur oft staðið yfir svo mánuðum skiptir. Jón vill þó ekkert gefa upp um upphæðirnar sem hann hefur greitt fyrir bækurnar í safni hans „En auðvitað kostar þetta sitt,“ bætir hann við.Heimskringlan sem honum áskotnaðist á dögunumBækurnar geymir hann í þar til gerðum geymsluskáp sem hamlar því að sólarljós og ryk komist í bækurnar. „Maður þarf helst að skoða þær með hvítum hönskum en maður hefur kannski ekki verið nógu duglegur við það fram til þessa,“ segir Jón. Jón Viðar er formaður og forstjóri bardagaíþróttaklúbbsins Mjölnis og hefur áhugi hans á fornbókmenntum smitast í alla umgjörð félagsins. Félagið framleiðir meðal annars boli með ljóðum úr Egils- og Grettissögu en þau eru tekin orðrétt upp úr fyrstu prentunum þeirra beggja. Jón er í sambandi með Ágústu Evu Erlendsdóttur leikkonu sem hann segir hafa engu minni áhuga en hann sjálfur á fornritunum og því hefur þessi þráhyggja hans ekki haft nein alvarleg áhrif á sambúðina. Jón leitar nú að fyrstu prentun af Grettis sögu en hann hefur lengi haft dálæti á bókinni. Hann biðlar til allra sem gætu haft upplýsingar um hvar hún er niðurkominn að hafa samband við sig. Aðspurður um hvort hann hafi í huga að leyfa almenningi að skoða safnið hans segir hann það ekki vera á döfinni. „Kannski í framtíðinni.“Hér má sjá margar af uppáhaldsbókum Jóns,sumar prentaðar beint eftir skinnhandritum Árna Magnússonar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira