Innlent

Kennarasambandið gagnrýnir Hvítbók menntamálaráðherra

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Í Hvítbók er eitt meginmarkmiðið að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44% í 60%.
Í Hvítbók er eitt meginmarkmiðið að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44% í 60%. vísir/gva
Kennarasamband Íslands (KÍ) gagnrýnir þær leiðir sem á að fara til að ná markmiðum sem sett eru fram í Hvítbók Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra, um umbætur í menntamálum, og segja sparnaðaranda svífa yfir vötnum.

Tvö meginmarkmið eru sett fyrir árið 2018. Annars vegar um aukna lestrarhæfni nemenda. Hins vegar að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44 prósent í 60 prósent. Markmiðunum á að ná með því að endurskipuleggja námstíma og stytta nám til lokaprófa, draga úr brotthvarfi og breyta skipulagi starfsmenntunar. KÍ gagnrýnir þessa leið og telur ekki að stytting námstíma sé svarið við vandanum.

„Í Hvítbók er mikið gert úr að vísa til rannsókna í menntamálum en þegar það kemur að styttingu námstíma þá hafa engar rannsóknir verið gerðar á því og ekkert sem styður þá fullyrðingu að það sé góð leið,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ.

Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, segir sparnaðaranda svífa yfir vötnum.vísir/stefán
Aðalheiður bendir á að stuðningur við nemendur, fjölbreyttara námsframboð, aukin starfs- og námsráðgjöf og minni námshópar séu vænlegri leiðir til árangurs. Einnig að skima fyrir brotthvarfseinkennum mjög snemma á skólagöngu nemenda og vinna kerfisbundið með forvarnir frá grunnskólastigi yfir í framhaldsskóla. 

Allt er þetta hluti af menntastefnu sem samþykkt var árið 2008 en hefur, samkvæmt KÍ, að stórum hluta legið niðri vegna efnahagskreppunnar. 

„Það er ekkert komið inn á fjármuni í Hvítbók. Ef meiningin er að koma menntalögunum í framkvæmd, sem KÍ fagnar, kostar það fjármuni. Mér finnst skrýtið að þær kröppu aðstæður sem skólarnir búa við séu ekki settar í samhengi og því finnst mér vanta ákveðna veruleikatengingu í Hvítbókina,“ segir Aðalheiður og bætir við að sparnaðarandi svífi yfir vötnum þótt það komi ekki beinlínis fram. 

„Illugi hefur sagt að hægt sé að spara með því að stytta námið. Þetta finnst okkur ekki boða gott fyrir menntun nemenda og gæði námsins. Nógu er búið að ganga harkalega að menntakerfinu enda hefur verið sparað þar frá því fyrir efnahagshrun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×