Kynnir tölvufíkn fyrir Íslendingum Bjarki Ármannsson skrifar 21. júní 2014 16:01 Ungur maður í Kína í notar tölvu. Þar í landi telja yfirvöld að milljónir séu háðir tölvunotkun. NordicPhotos/AFP
Ný vefsíða sem ber heitið tölvufíkn.is er komin í loftið, en á henni er hægt að fræðast um vandann sem felst í því að ánetjast tölvunoktkun. Maðurinn á bak við síðuna er Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson kennari, en hann glímdi sjálfur við tölvufíkn fyrir nokkrum árum. „Án þess að vita það, var ég alveg húrrandi tölvufíkill,“ segir Þorsteinn. „Ég var rosalega mikið í tölvunni og það var allt annað á hakanum. Ég eignaðist ekki fjölskyldu, ég hunsaði eigin fjölskyldu, ég hunsaði eigin heilsu og klúðraði skólanum. Síðan er það ekki fyrr en ég er orðinn 33 eða 34 ára gamall sem ég sný þessu við, hætti að setja tölvuna í fyrsta sæti og átta mig á því að ég er búinn að sólunda stórum hluta af lífi mínu í að leika mér.“ Þorsteinn segist enn grípa reglulega í tölvuleiki en þá aðeins þegar hann hefur lokið öðrum skyldum sínum. „Þetta er eins og með matarfíkn, maður hættir ekkert að borða,“ segir hann. „Maður verður bara að læra að borða og að hafa stjórn á fíkninni.“ Á nýja vefnum má finna ýmsar upplýsingar um vandann, meðal annars að 13,7 prósent fullorðna einstaklinga segjast eiga erfitt með að vera án netsins í nokkra daga. Þorsteinn segir að Íslendingar geri sér ef til vill ekki nógu vel grein fyrir því hversu stórt vandamál tölvufíkn sé hér á landi. „Ég á til dæmis fullt af tölvufíklavinum,“ segir hann. „Og ég er bara eitthvað skrýtinn fyrir að tala um tölvufíkn, þeir eru ekkert fíklar. Þetta er bara eins og alkar, þegar einn drykkjufélaginn fer í meðferð og hinir vilja ekki horfast í augu við það. Enn sem komið er umræðan mjög ung hérna og ég held að fólk átti sig bara ekkert á því að þetta er vandamál sem fer vaxandi.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira