Þjóðhátíð í dag: Dagskráin í Reykjavík Bjarki Ármannsson skrifar 17. júní 2014 10:11 Frá Arnarhóli fyrir nokkrum árum. Vísir/Danni
Í dag er þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga og þéttskipuð dagskrá í miðbæ Reykjavíkur að vanda. Dagskráin hófst nú klukkan 10:15 með Guðsþjónustu í Dómkirkjunni þar sem Agnes Sigurðardóttir biskup og Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur þjóna fyrir altari. Séra Valgeir Ástráðsson predikar. Klukkan 11:10 hefst svo hátíðarathöfn á Austurvelli og stendur yfir til um 11:50. Þar mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra halda ræðu, Fjallkonan í ár mun flytja ávarp sitt og Ólafur Ragnar Grímsson forseti leggur blómasveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Karlakórinn Heimir, Lúðrasveit Reykjavíkur og Drengjakór Reykjavíkur leika tónlist. Að athöfninni lokni hefst svo skrúðganga frá Austurvelli að kirkjugarðinum við Suðurgötu. Stærri skrúðgöngur hefjast svo klukkan eitt, frá Hlemmi niður Laugaveg og frá Hagatorgi niður í Hljómskálagarð. Klukkan 13:30 hefst svo fjölskyldudagskrá víða um bæ. Latibær, Gunni og Felix, Sirkus Íslands, Pollapönk og fleiri troða upp á Arnarhóli. Ókeypis verður í leiktæki í Hljómskálagarðinum, Brúðubíllinn verður í Hallargarðinum og Sirkus Íslands með götuleikhús og sirkusskóla á Ingólfstorgi. Þá verður einnig tónlistardagskrá í Eldborgarsal Hörpu þar sem Lúðrasveitin Svanur, Karlakórinn Heimir, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri leika tónlist til um það bil þrjú. Þetta er aðeins brot af skipulagðri dagskrá í dag, sem nálgast má í heild sinni á vef Reykjavíkurborgar. Dagskrá lýkur klukkan tíu í kvöld.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira