Ríkið greiðir tvær milljónir vegna uppsagnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. júlí 2014 14:57 Húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem dómurinn var kveðinn upp. VÍSIR/PJETUR
Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi ráðuneytisstjóra, og síðar erindreka Íslands á sviði alþjóðaheilbrigðismála, tvær milljónir króna vegna þess hvernig staðið var að uppsögn hans eftir hrun. RÚV greindi fyrst frá.Davíð Á. Gunnarsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, fær fyrrgreindar tvær milljónir króna í miskabætur vegna þess hvernig staðið var að uppsögn hans í upphafi árs 2009. Er það niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Uppsögn Davíðs var hluti af niðurskurði eftir hrun og tók gildi samstundis en Davíð fékk greidd laun í eitt ár. Davíð gegndi þá embætti sérstaks erindreki um alþjóða heilbrigðismál í utanríkisráðuneytinu og taldi hann að ætla mætti af uppsögninni að hún væri tilkomin vegna einhvers annars en niðurskurðar. Embætti hans í utanríkisráðuneytinu var lagt niður þann 1. febrúar 2009 og hafði hann fengið bréf þess efnis þremur dögum áður. Reyndist honum erfitt að finna starf í kjölfar uppsagarinnar sökum hvernig a henni var staðið. Í dómnum segir að nánast hafi verið um að ræða fyrirvaralausa uppsögn og féllst dómarinn á kröfu Davíðs. Þá hafi ríkið ekki tilkynnt um ástæður hennar og honum ekki gefist ráðrúm til að sinna eðlilegum starfslokastörfum erlendis. „Verður að telja að þessi framganga ráðherra hafi verið til þess fallin að valda stefnanda óþægindum og álitshnekki, umfram það sem óhjákvæmilega leiddi af þeirri íþyngjandi ákvörðun að leggja niður starf hans,“ segir í dómnum. „Var hún til þess fallin að veikja traust til stefnanda og kasta rýrð á orðstír hans, ekki síst á erlendum starfsvettvangi þar sem menn kunna að hafa haft aðrar forsendur til að skilja gangverk stjórnsýslunnar á Íslandi við þær aðstæður sem uppi voru í kjölfari efnahagshrunsins haustið 2008."
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira