Ríkir fá milljarð í skuldaniðurfellingu Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 10. maí 2014 00:01 Embætti ríkisskattstjóra segir að þeir efnamestu fái milljarð af þeim 80 milljörðum sem ríkisstjórnin ætlar að verja til lækkunar höfuðstóls verðtryggðra lána. Fréttablaðið/GVA
Efnahagsmál Rúmlega 200 fjölskyldur sem eiga hreina eign upp á meira en 120 milljónir eiga von á um milljarði í skuldaniðurfellingu samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Það er þó háð því að frumvarp ríkisstjórnarinnar um niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra lána verði samþykkt á Alþingi. Samkvæmt því á að setja 80 milljarða í niðurfærsluna. Ríkisskattstjóri tók saman yfirlit fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um skuldir og eignir þeirra sem eru með fasteignalán. Í samantektinni kemur fram að um 18.500 fasteignaeigendur áttu ekkert um síðustu áramót en skulduðu rúmlega 434 milljarða króna. Í hópnum sem á eignir frá nokkur þúsund krónum og upp í tíu milljónir eru jafn margir og þeir sem ekkert eiga, eða um 18.500. Fasteignaskuldir þessa hóps nema 314 milljörðum. 229 eru í hópnum sem á hreina eign upp á 120 milljónir. Þessi hópur skuldar 2,2 milljarða í fasteignalán. Í hópnum sem á næstmest eða hreina eign á bilinu 110 til 120 milljónir eru 87 fjölskyldur. Samtals skulda þessar fjölskyldur innan við milljarð eða um 800 milljónir króna. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra, gagnrýnir harðlega að efnamiklir fái niðurfellingu skulda. Hann segir að það megi leiða að því líkur að nærri fimm hundruð manns, sem eiga eignir umfram 100 milljónir króna, fái einhverjar niðurfellingar á húsnæðisskuldum sínum. Sumir í hópnum fái væntanlega fulla niðurfellingu eða fjórar milljónir króna. Hann segir að þessu til viðbótar sé verið að fella niður auðlegðarskatt á þetta fólk. „Maður eiginlega trúir þessu ekki,“ segir Steingrímur. Steingrímur segir að á meðan hinir efnamestu fái skuldaniðurfellingar fái þeir sem standa verst lítið sem ekkert. Ástæður þess séu meðal annars þær að þessir hópar séu búnir að nýta þau úrræði sem voru í boði fyrir skuldara.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Sjá meira