Innlent

Orkubú hagnast þrátt fyrir erfiðleika

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Tíðarfar dró úr framleiðslu hjá Orkubúi Vestfjarða.
Tíðarfar dró úr framleiðslu hjá Orkubúi Vestfjarða. Fréttablaðið/Pjetur
Hagnaður varð af venjubundnum rekstri Orkubús Vestfjarða í fyrra, níunda árið í röð.

Að því er segir í tilkynningu frá Kristjáni Haraldssyni orkubússtjóra var framleiðsla vatnsaflsvirkjana fyrirtækisins með minna móti vegna tíðarfarsins.

„Í aftakastormi síðustu daga janúar brotnuðu flutningslínur og urðu verulegar truflanir í flutnings- og dreifikerfi raforku,“ segir í tilkynningunni.

Hagnaður ársins 2013 var 223 milljónir króna. Eignir eru 6,5 milljarðar króna en skuldir tæpur milljarður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×