Seinheppnasti þjófur í heimi: Festist í strætóhurð og laminn grátandi með kylfu Bjarki Ármannsson skrifar 25. október 2014 15:15 Sitt sýnist væntanlega hverjum um hvort þjófurinn hafi átt útreiðina skilið. Mynd/Skjáskot úr myndbandi
Myndbandsupptaka úr öryggismyndavél strætisvagns í borginni Conception í Síle hefur farið líkt og eldur í sinu um netheima undanfarna daga. Myndbandið sýnir stórmerkilega atburðarás sem fer að stað þegar tveir ungir menn reyna að ræna handtösku eins farþega vagnsins. Sá þeirra sem fær það verkefni að grípa töskuna og hlaupa út úr vagninum mun seint gleyma útreiðinni sem hann hlýtur í kjölfarið. Hinn 22 ára hnuplari gerir nefnilega ekki eina heldur tvær misheppnaðar tilraunir til að ná af konunni töskunni (í fyrra skiptið reynir hann að láta eins og um grín hafi verið að ræða) áður en hann ákveður að gefa hugmyndina upp á bátinn og stökkva út. Þá fyrst byrja vandræðin því þjófurinn festir á sér höndina í dyrum vagnsins og getur enga björg sér veitt þegar vagnstjórinn byrjar að lemja hann ítrekað með hafnaboltakylfu. Ungi maðurinn, sem væntanlega hefur séð atburðarásina fyrir sér allt öðruvísi í huganum, situr fastur og fellir tár þar til vagnstjórinn kemur honum í hendur sílensku lögreglunnar. Myndbandið fylgir hér fyrir neðan, sjón er sögu ríkari.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira