Sýknaður af ákæru um nauðgun í tjaldi á Þjóðhátíð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júní 2014 14:02 Frá Þjóðhátíð. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun frá því á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sumarið 2012. Var maðurinn ákærður fyrir að hafa þröngvað stúlkunni, sem þá var átján ára, til samræðis í tjaldi stúlkunnar sem hann hafði kynnst nokkrum mínútum fyrr. Bótakröfu stúlkunnar upp á tvær og hálfa milljón krónur var vísað frá dómi.Í dómnum kemur fram að ákærði hafi komið að vinahópi stúlkunnar um kvöldið og slegið hana utan undir. Sagðist hann hafa gert það til að vekja athygli hennar á sér. Bað hann hana afsökunar með kossi og nokkrum mínútum síðar hafi þau fært sig inn í tjaldið. Þar greinir þeim hins vegar á hvað gerst hafi. Ákærði segist hafa haft samræði við stúlkuna með hennar samþykki. Hún segist hins vegar hafa barist um og reynt að koma manninum af sér og allan tímann öskrað „hættu, hættu“. Fór stúlkan, sem þá var átján ára, á neyðarmóttöku morguninn eftir og var maðurinn handtekinn um kvöldið. Málið var hins vegar ekki kært til lögreglu fyrr en í janúar síðastliðnum. Hafði það áhrif á trúverðugleika í framburði vitna, sem öll voru undir áhrifum áfengis umrædda nótt og lítið samræmi í vitnisburði þeirra, hve langt var liðið frá meintri nauðgun. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að viðbrögð stúlkunnar þegar hún kom út úr tjaldinu, eftir meinta nauðgun, hafi ekki verið trúverðug í ljós þess ofbeldis sem hún greindi lögreglu frá að hafa orðið fyrir. Sagði hún manninn hafa haldið henni niðri, bitið í neðri vör og ítrekað tekið harkalega í hár hennar. Maðurinn neitaði allan tímann sök. Þá segir í dómnum ekki hægt að horfa fram hjá því við mat á trúverðugleika framburðar brotaþola að hún taldi í tvígang ástæður til þess í yfirheyrslu hjá lögreglu að taka fram að hún væri að segja satt og rétt frá. „Í fyrra skiptið, undir lok skýrslutökunnar, sem stóð í um eina klukkustund, þegar brotaþoli sagði „ég er ekki að ljúga þessu.“ Stuttu síðar, þegar lögregla spurði brotaþola hvort hún teldi allt komið fram af hennar hálfu, sagðist brotaþoli vilja vera viss um að lögreglan tryði sér, en heldi ekki að hún væri að reyna að fá athygli.“ Var stúlkan sérstaklega spurð um þessi ummæli sín fyrir dómi og greindi hún frá því að hafa á þessum tíma óttast að lögregla teldi hana vera að sækjast eftir athygli og vísað til slæmrar reynslu af því að hafa sagt fjölskyldu sinni frá óskyldu en erfiðu máli sem tengdist tilteknum fjölskyldumeðlimum eins og segir í dómnum. Var það mat dómsins að framburður stúlkunnar væri ekki trúverðugur. Engir líkamlegir áverkar hafi verið sýnilegir á stúlkunni og rannsókn lögreglu hafi ekki staðfest þá hárreytingu sem haldið var fram. Var málinu vísað frá dómi.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira