Kennarasambandið segir jákvæðar áherslur í hvítbók menntamálaráðuneytis Randver Kári Randversson skrifar 20. júní 2014 15:57 Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Daníel
Kennarasamband Íslands telur að margar jákvæðar áherslur séu að finna í hvítbók menntamálaráðuneytisins um stefnumótun í íslenskum menntamálum. Sumt þurfi þó að skýra betur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands. Í hvítbók menntamálaráðuneytisins er sjónum beint að þeim stoðum menntakerfisins sem helst þurfi að styrkja. Bent er á leiðir sem séu til þess fallnar að veita nemendum þá menntun sem menntalögin 2008 og aðalnámskrár 2011 boða, og áherslur og aðgerðir eru rökstuddar með vísan í alþjóðlegan samanburð og rannsóknir í menntamálum. Í tilkynningunni er bent á að nokkur atriði sem nefnd eru í hvítbókinni þurfi að skoða betur. Færni í læsi sé undirstaða þess að nemendur nái tökum á námi sínu og lykilforsenda virkrar samfélagsþátttöku og sé grunnurinn lagður strax í leikskóla. Brotthvarf úr námi sé samfélagslegt vandamál sem mikilvægt er að ráða bót á með samstarfi margra aðila. Lengi hafi verið talað um að efla þurfi starfsmenntun og binda kennarasamtökin vonir við að markmiðum fylgi efndir. Innleiðing menntastefnunnar frá 2008 hafi að stórum hluta legið niðri vegna efnahagskreppunnar. Kennarasamtökin eru sammála um nauðsyn þess að nú þurfi að veita skýrari leiðsögn um framkvæmd og áherslur. Skólar þurfi fjármagn í samræmi við það meginmarkmið að öllum nemendum bjóðist innihaldsríkt og fjölbreytt nám við hæfi, list-, verk- og bóklegar greinar og skapandi kennsluhættir. Kennarastéttin þurfi einnig stuðning við þá sérfræðivinnu sem innleiðingin krefst. Ekki verði lengur vikist undan því að verja meiri fjármunum til stuðnings við nemendur. Varast beri að meta gæði menntunar með einföldum mælikvörðum, því þar hafi margir þættir áhrif: Kennaramenntun, aðstæður kennarastéttarinnar til starfsþróunar og samfélagsleg staða hennar, námsaðstæður nemenda, starfsskilyrði skóla og framlög til menntamála. Að lokum segir í tilkynningunni að kennarasamtökin muni að sjálfsögðu taka þátt í samstarfi við að útfæra þau markmið hvítbókar sem eru til hagsbóta fyrir menntun nemenda og samfélagið í heild. Það sé í samræmi við það hlutverk kennarastéttarinnar á öllum tímum að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda í menntamálum og framkvæmd skólastarfs.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira