Telja RÚV hafa flutt leikverk í óleyfi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. júní 2014 20:56 FLÍ segir að tilraunum til samningaviðræðna hafi verið mætt af miklu áhuga- og sinnuleysi. vísir/gva
Samninganefnd Félags leikstjóra á Íslandi sleit í gær viðræðum við Ríkisútvarpið ohf (RÚV) eftir tveggja daga samningalotu með ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá félaginu segir að launatölur samningsins hafi ekki tekið neinum breytingum frá árinu 2005 og að sömu sögu sé að segja um greiðslur RÚV til leikstjóra vegna endurflutnings verka. Félagið telur RÚV hafa með skipulögðum hætti brotið ákvæði kjarasamningsins og flutt eldri verk án leyfis, en samkvæmt gildandi kjarasamningi er endurflutningur á verkum háður skriflegu leyfi leikstjóra. Þá telur félagið RÚV hafa skotið sér undan skilum á samningsbundnum launatengdum gjöldum. Í tilkynningunni segir jafnframt að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar af hálfu félagsins til að fá forsvarsmenn RÚV að samningaborði en að þeim tilraunum hafi verið mætt af áhuga- og sinnuleysi. Félagið kemur til með að sækja skaðabætur og fullar greiðslur vegna þeirra verka sem Útvarpsleikhúsið hefur flutt í óleyfi. Samninganefnd RÚV var tilkynnt að félagið muni leita allra leiða til að tryggja hagsmuni félagsmanna og hagsmuni látinna félaga og erfingja þeirra jafnframt, sem nú fara með höfundarrétt þeirra. „Félag leikstjóra á Íslandi er reiðubúið að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að tryggja rétt leikstjóra með það að markmiði að tryggja þeim sanngjörn kjör fyrir störf sín ásamt því að knýja Ríkisútvarpið til að virða þann rétt sem leikstjórar eiga yfir verkum sínum,“ segir í tilkynningunni. Margrét Magnúsdóttir, forsvarsmaður Ríkisútvarpsins í samningaviðræðunum, segir í samtali við RÚV að leikstjórar hafi fengið greitt fyrir verk sín og þeir hafi tekið við greiðslum athugasemdalaust. Saminganefnd Ríkisútvarpsins var skipuð lögfræðingi frá Samtökum atvinnulífsins ásamt staðgengli útvarpsstjóra og nýverið hóf nýr skrifstofustjóri RÚV þátttöku í viðræðunum, þegar mannabreytingar urðu í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Eftir að sáttasemjari ríkisins tók kjaradeiluna til sín hefur hann boðað deiluaðila til þriggja samningafunda en samninganefndir aðila hafa einnig haldið fundi sín í milli. Samninganefnd FLÍ hafa skipað þau Páll Baldvin Baldvinsson formaður, Jón Páll Eyjólfsson og Kolbrún Halldórsdóttir stjórnarmenn FLÍ. Næsta verkefni nefndarinnar er að hefja samningaviðræður við Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsi og Fjármálaráðuneyti fyrir hönd Ríkissjóðs vegna starfa leikstjóra við Þjóðleikhúsið.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira