Íslendingar á Filippseyjum misstu meðvitund Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. júní 2014 11:05 Slasaðir starfsmenn fluttir á sjúkrahús. Til hægri er Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri Mannvits. Vísir/Biliranisland.com/GVA „
Maður prísar sig sælan að allir eru komnir til starfa og heilir út úr þessu. Það er ekki sjálfgefið,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Mannvits. Tveir Íslendingar misstu meðvitund við jarðborun vegna gasleka á fimmtudaginn í síðustu viku. Filippeyski fréttamiðillinn Biliranisland gerir mikið úr atvikinu á síðu sinni þar sem fram kemur að alls hafi átta starfsmenn Biliran Geothermal, BGI, hafi slasast vegna lekans. Enginn þó alvarlega. RÚV greindi fyrst frá hér heima. Starfsmenn Mannvits eru að störfum ytra við verkfræðilausnir fyrir BGI en starfsmenn Jarðborana sjá um sjálfa borunina. Eyjólfur Árni segir báða starfsmenn hafa mætt aftur til vinnu á föstudaginn. Annar þeirra sé síðan á heimleið en það tengist ekki slysinu á fimmtudaginn.Farið yfir verklag „Við höfum verið í sambandi við þá og fjölskyldur þeirra líka, eðlilega enda mennirnir langt í burtu. Við munum fara yfir verklagið á staðnum og komast að því hvað gerðist,“ segir Eyjólfur í samtali við Vísi. Um hefðbundna aðgerð hafi verið að ræða þar sem verið var að prófa borholuna og fá gufuna upp úr henni. „Gasið sem kemur upp tekur allt súrefnið í umhverfinu. Menn þurfa súrefni og ef það er ekki til staðar þá líður yfir menn,“ segir Eyjólfur Árni. Mennirnir voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús ásamt kollegum sínum í hópi heimamanna. Þeir voru svo útskrifaðir degi síðar. Fundað verður á föstudaginn hjá Mannvit og skoðað hvort verklagið sé ekki örugglega í lagi. Fyrri hvert verkefni er framkvæmd áhættumat og ákveðnu verklagi fylgt að sögn Eyjólfs. „Það er grundvallaratriði að verklagi sé fylgt.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira