Árásin við Ráðhúsið: Eitt vitni hefur stigið fram Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. júní 2014 14:39 Kristófer Már Maronsson varð fyrir líkamsárás á sunnudag. „
Ég fékk símtal frá einni konu sem varð vitni að árásinni. Mér finnst það algjörlega frábært og það léttir mikið á mér að fá að vita meira um manninn sem réðst á mig,“ segir Kristófer Már Maronsson, sem varð fyrir líkamsárás við Ráðhús Reykjavíkur á sunnudagskvöld. Vísir fjallaði um málið í morgun og hefur það fengið mikla athygli. Kristófer sagði frá því að enginn hafi gripið inn í; öll vitnin hafi gengið í burtu. Kristófer gagnrýndi fólkið sem sá árásina fyrir skeytingarleysi. Konan sem hafði samband við Kristófer gat lýst árásarmanninum. „Hún sá ekki framan í hann, en gat lýst því hvernig hann var klæddur. Hún sagði mér að hún hafi hringt á lögregluna þegar hún sá manninn ráðast á mig. Ég er henni afar þakklátur. Mér þykir mjög vænt um að hún hafi hringt í mig,“ útskýrir hann og bætir við að konan hafi beðist afsökunar á því að hafa ekki komið honum til hjálpar, hún gekk í burtu ásamt annari konu sem hún var samferða. „Þegar þær sjá mig, þá var sat ég í áfalli og var alveg stjarfur. Þær héldu að það væri bara allt orðið rólegt og ég þyrfti ekki hjálp. Eins og ég segi, ég er henni þakklátur að hafa hringt."Spurði hvort hann ætti strætómiða Kristófer lýsti atburðarásinni í Facebook-færslu sem hann birti skömmu fyrir miðnætti og hefur fengið töluverða dreifingu. Í færslunni segir hann frá því þegar hann var staddur í strætóskýli fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur á leið heim úr vinnu í gærkvöld. Því næst vatt ungur maður sér upp að honum og spurði Kristófer hvort hann ætti handa honum strætómiða. Þegar Kristófer neitaði því, sagðist einungis eiga strætókort og setti heyrnartólin aftur í eyrun brást betlarinn ókvæða við. „Einhverra hluta vegna fór það frekar illa í hann því áður en ég vissi dundu á mér höggin frá honum og það var ekki fyrr en ég kom hendinni fyrir og öskraði af lífs og sálarkröftum á hjálp sem að hann fór að bakka út,“ lýsir Kristófer í færslunni og segir að því næst hafi maðurinn sagt honum að „fokka sér“ og labbað burt. Kristófer hafi í kjölfar árásarinnar legið óvígur eftir; með blóðugt auga og mölbrotin gleraugu við hliðina á sér. Hann hafi varla komið upp orði af hræðslu ásamt því að hægri þumalfingurinn Kristófers sé mikið laskaður og óhreyfanlegur með öllu. Kristófer Már lýsir því hvernig þeir sem að honum komu, blóðugum og vönkuðum, létu sér fátt um finnast.Ætlar að kæra Kristófer hyggst kæra atburðinn. „Já, næsta skref er að leggja fram kæru. Ég geri það eftir vinnu í dag,“ segir hann. Kristófer vonast til þess að enn fleiri stígi fram og gefi lýsingu á árásarmanninum. Í viðtali við Vísi í morgun lýsti Kristófer því hvernig hann kallaði á mann á hjóli sem var þarna skammt frá. „Það var þó maður skammt frá á hjóli sem hafði greinilega stoppað til þess að horfa á atburðinn og ég kallaði eins og ég gat á þennan mann. Maðurinn horfði í áttina á mér, snéri sér við og hjólaði í burtu eins og ekkert hafði gerst.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira